Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.10.1923, Síða 112
158
Tímarit íslenskra samvinnuíelaga.
Fjármálin og hermálin voru því aðaláhugamál þeirra.
Stjórnendurnir álitu sér fyrst og fremst skylt að auka
tekjur ríkissjóðs. Var því áríðandi, að beina atvinnuveg-
unum í það horf, er trygt gæti fjárhagslegt sjálfstæði
landsins, og efla þá atvinnuvegi, er gáfu ríkissjóði mest-
ar tekjur. Stjórnarvöldin beita sér því fyrir verklegum
framkvæmdum í iðnaði og verslun, og leggja alt kapp á
að stjóma atvinnumálunum í samræmi við aldarandann.
þess ber að gæta, að fyrst framan af gætir lítt áhrifa
hinna nýju strauma á hugsunarhátt og efnahag fjöldans.
Framtak einstaklingsins var lítið, sökum þess, að verkleg
þekking var á lágu stigi, starfsfé þjóðanna var lítið, gaml-
ar venjur og margvísleg ánauð dró úr dugnaði manna. Rík-
ið eitt hafði fé og framsýni til að beita sér fyrir nýung-
um og hrinda þeim í framkvæmd, og í mörgum málum
gátu einstaklingarnir aðeins hafist handa, ef ríkið stóð á
bak við þá.
Án efa var kaupauðgisstefnan í mörgum greinum í
samræmi við staðháttu og lífskjör þjóðanna, og á sumum
sviðum til þjóðþrifa; en hún var of einhliða, gætti ekki
jafnt hagsmuna allra stétta, og fór í ýrnsum atriðum út í
öfgar. þegar fram liðu stundir, óx þekking og framtak ein-
staklingsins, en atvinnulöggjöfin, bændaánauðin og margs-
konar ófrelsi dró úr dáð manna, og stefna stjórnmála-
mannanna varð því óvinsæl.
Kaupauðungar gættu þess ekki að breyta löggjöfinni
í samræmi við kröfur atvinnulífsins.
Kaupauðungar fóru út í öfgar, þegar þeir álitu, að
þjóðirnar væru þeim mun auðugri, því meira sem þær
ættu af góðmálmi, og er þeir lögðu mest kapp á að fram-
leiða til útflutnings. það er að vísu mikilvægt atriði, að í
hverju landi sé nóg af mynt eða goðmálmi, til þess að miðla
viðskiftunum, en aukist málmforðinn mikið fram yfir það,
er viðskiftalífið krefst, er það eðlilegast, að honum sé var-
ið til þess að kaupa nauðsynjavörur frá öðrum löndum, eða
að efla innlenda framleiðslu. Aukin framleiðsla til notk-
unar innanlands er eigi síður áríðandi fyrir fjárhagslegt