Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1972, Page 130

Andvari - 01.01.1972, Page 130
128 FINNUR JÓNSSON ANDVARI „þurr“ og ekki skemmtileg, en standa á þeim rétta grundvelli, lifa öldum saman. Þetta íhefur 'haft mjög mikil áhrif á mína vísindaaðferð — og ekki síður það, að ég var svo lánssamur að hafa ágæta kennara hér við háskólann, sem allir fylgdu þeim meginreglum og aðferð, sem ég hef hér lýst stuttlega. Ég hef af fremsta megni leitazt við að vera óhlutdrægur í riti, hvernig sem á stóð og við h'verja sem var að skipta, og 'leitazt við að láta engin óviðkomandi persónuáhrif fá vald yfir skoðunum mínum eða orðatiltækjum. Ég hef aldrei getað skilið, hvers vegna tveir vísindamenn geta ekki deilt um vísindalegt mál illyrðalaust og án þess að nota særandi eða niðrandi orð. Hafi íþessu verið beitt við mig — alveg varhluta hef ég ekki farið —, þá skipti ég mér ekki framar af jreim manni, nema það sé óumflýjanlegt. En um þetta mál vil ég heldur að aðrir dæmi. Þetta er nú orðið alllangt mál, og þó eru svo sem tvö atriði enn, sem ég get ekki alveg sleppt. Menn hafa oft látið í ljós við mig, að ég haf’i unnið allmikið, gefið út allmargar bækur og rit. Þessu verður ekki neitað. En oft lýsir sér í þeim ummælum nokk- urs konar undrun — og hún er ástæðulaus. Galdurinn er ekki mikill, lítill annar en að nota tímann, sem til er, slæpast ekki. Ég hef áður unnið að jafnaði svo sem 10 stundir daglega — nú er það orðið minna —, og hver sem veit, hvað vinna er, veit, að töluverðu má afkasta á þeim tíma. Og svo hefur mér verið gefinn sá eiginleglciki, að éghef vel getað unnið að einu efni fyrri hluta dags, að öðru hinn síðara, og þannig fengizt við tvö efni jöfnum höndum. Lí'ka hef ég skotið því þriðja inn, t. d. prófarkalestri, um miðbik dagsins. Lengur en til kl. 10 á kvöldin hef ég aldrei getað unnið, og ég hef ekki byrjað daginn fyrr en kl. 8. Annar eiginlegleiki, sem hefur dugað mér vel, er sá, að ég þykist nokkuð fljótur að skrifa, það er stórmikil hjálp í því. Prófarkalestur tekur æðimikinn tíma, en enginn skyldi sjá í það. Prentvillur eru stórlýti á hverri bók — og ekki sízt á vísindabókum. I þeim koma oft og einatt fyrir tilfærð orð og setningar úr öðrum ritum og tilvísanir í þau, og er það hin mesta nauðsyn, að það sé allt keiprétt, en til þess að vera viss um, að svo sé, er nauðsynlegt að fletta þeim öllum upp, um leið og próförkin er lesin. Maður má ekki reiða sig óf mikið á sjálfan sig. Llngum m'önnum er hætt við því að telja sig óskeikula eða því sem næst, og tek ég mig ekki undan. Ég varð að læra að gera strangar krölur til nákvæmni í allri meðferð. í hinum fyrstu ritum mínum má eflaust finna villur, sem stafa af of miklu sjálfstrausti. En einkum er þessi nákvæmni nauðsynleg við útgáfur fornrita. Þar er góður prófarkalestur það, sem ríður mest á af öllu. Þegar ég hef gefið út rit með handritamun, hef ég flett hverju orði upp í frumbókunum, auk þess sem aðalmálið var borið saman við
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.