Andvari - 01.01.1972, Page 165
ANDVARI
ÍSLENZK LJÓÐLIST 1969—1971
163
Dynur hagamúsar
Sem skýst gegnum grasið
Án'þess að bæra það;
Kastali sandorms
Sem næsti gári lognöldunnar
Leggur í rústir.
Lífið er ek'ki þúngstígt;
Heldur ek'ki dauðinn
Sem einsog kostulegur
Sjónfhverfíngamaður
Iklæðist líkama okkar
Þegar í IFæðíngu.
Ég er illa svikinn, ef hér fer ekki skáldefni.
XI
Dregur nú brátt að því, að spjalli þessu Ijúki. Eftir er aðeins að geta þriggja
frum.smíða frá árinu 1971.
Maður vei't ekki bvaðan á sig stendur veðrið við að lesa kvæði Aðalsteins
Ingól'fssonar í Óminnislandi. Ljóðmælin eru svo brokkgeng, að raun er upp á
að borfa, en ef Aðalsteinn er ungur og ber gæfu til að breyta um vinnubrögð
og vaxa frá 'þessum tilraunum, þá gæti rætzt úr honum. Fáir eru smiðir í fyrsta
sinn, og kjarrið verður að fá að vaxa áður en trén koma ein og stök í skóginum.
Hvísl Ragnbildar Ófeigsdóttur er og ungæðislegur kveðandi, en þar er oft
grannur .strengur kunnáttusamlega sleginn, svo að stundum verður huldutóni
líkast. Kvenþjóðinni tekst harla vel að túlka þann skáldskap, sem nýstárlegastur
er og fíngerðastur í ljóðagerð samtíðannnar. Ragnhildur Oleigsdóttir iðkar slíka
aðferð, og séu ]>etta fyrsJtu tilraunir hennar, þá gæti hún orðið slyngur hljóð-
færaleikari, þegar fram líða stundir.
Mynd in í þessu stefi er eins og grönn teikning dregin fáum strikum:
Þann morgun
var öll tilveran
þakin tindrandi mjöll