Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1996, Page 14

Andvari - 01.01.1996, Page 14
12 EINAR ÓLAFSSON ANDVARI Að eigin sögn var Brynjólfur gerónýtur til allrar sveitavinnu, eins og hann komst sjálfur að orði í viðtölum mínum við hann árið 1988.2 Hann lá í bókum, þótt bókakostur væri ekki mikill, en naut þess þó að búið var að stofna lestrarfélag í sveitinni. Pegar hann náði ekki í annað las hann í Biblíunni og kvaðst hafa lesið þá bók margsinnis spjaldanna milli. Tvær bækur höfðu mest áhrif á hann af öllu sem hann las í bernsku, sagði hann í svari við spurningu um lífsskoðun í Ríkisútvarpinu 1969.3 Þær voru Austurlönd eftir Ágúst H. Bjarnason og Úranía eftir Flammarion. Þessar bækur opnuðu honum nýja sýn, sagði hann. Hann komst að raun um, að það sem honum var kennt í Helgakveri og prédikunum prestsins voru ósannindi. „Ég fylltist heilagri reiði. Barnshugann þyrsti í þekkingu og einhverja vitneskju um þá veröld, sem hann var fæddur í án þess að skilja. I stað þess að veita honum einhverja úrlausn í því efni, var logið að honum. Og þetta voru engar venjulegar lygar um hversdagslega og smávægilega hluti, heldur um það, sem öllu máli skipti, hið mikilvægasta af öllu, sjálfan grundvöll mannlegs lífs.“ Fyrir ferminguna háði hann innri baráttu, honum var skapi næst að segja nei við altarisborðið. Hann kvað móður sína hafa skilið sig, en gat þó ekki gert henni þá smán að neita að láta ferma sig. Svo mikið var ofurvald hinnar hefð- bundnu lífsskoðunar, sagði hann. Þrátt fyrir efnaleysi tókst með aðstoð góðra manna að koma Brynjólfi til mennta og árið 1913 fór hann til Reykjavíkur, fimmtán ára gamall, til að lesa undir gagnfræðapróf. Að tveim árum liðnum tókst honum með herkjum að eigin sögn að ná gagnfræðaprófi. Gat hann þá sest í fjórða bekk eða lærdómsdeild haustið 1915. Helstu kunningjar hans þar voru Hendrik Ottósson, Ársæll Sigurðsson, Pálmi Hannesson síðar rektor og Einar Ólafur Sveinsson síðar pró- fessor. Aðrir skólafélagar hans urðu miklir vinir hans síðar, svo sem Bjarni Guðmundsson læknir, Jón Thoroddsen skáld og Dýrleif Árna- dóttir. Stúdentspróf tók Brynjólfur vorið 1918.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.