Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1996, Page 84

Andvari - 01.01.1996, Page 84
82 SVEINN SKORRI HÖSKULDSSON ANDVARI skrifað Einari: „Gestur kominn inn með eymd og óvirðing. Komdu heldur ekki en að þú komir með meiri eymd en þú fórst.“ Sumarið 1885 gekk Ein- ar að eiga danska unnustu sína, Maren Mathilde Petersen. Þau voru vígð í borgaralegt hjónaband í ráðhúsi Kaupmannahafnar. Það má vera til marks um uppreisnarhug Einars gegn kirkju og trúarbrögðum á þessum dögum að í athugasemdadálki hjónavígsluskrárinnar segir að þau velji borgaralegt hjónaband vegna þess að brúðguminn viðurkenni engin þau trúarbrögð sem þá séu játuð í ríki Danakonungs. Skömmu eftir brúðkaupið stigu ungu hjónin á skipsfjöl. Fyrir stafni lá Vesturheimur, land möguleikanna, tækifæranna og vonanna í hugarsýn evr- ópskra fátæklinga á 19. öld. Fyrst eftir komuna til Ameríku dvöldust þau í skjóli norska skáldsins og únítaraprestsins Kristofers Jansons í Minneapol- is, en síðan héldu þau til Winnipeg í Manitoba sem þá mátti orðið heita höfuðborg íslenska landnámsins í Kanada. Þau hjón hljóta að hafa lifað við afskaplega kröpp kjör eftir að þau settust þar að. Einhverjar tekjur hafði Einar af fyrirlestrahaldi og kennslu en að öðru leyti er lítið vitað um lífsaf- komu hans fyrsta kastið vestra. Um það bil einu ári eftir komuna til Winni- peg stofnaði hann svo blaðið Heimskringlu í september 1886 ásamt Frí- manni B. Anderson, en samdi ekki við hann og hvarf frá blaðinu í árslok. Enn hafði hann ekki fasta atvinnu og á næstu tveimur árum varð hann fyrir þeirri sáru raun að kona hans og tveir barnungir drengir þeirra hjóna lét- ust. Svo hermdi Thea Hermann að Einari hefði legið við sturlun af sorg eftir þennan ástvinamissi en þau fóstri hennar séra Jón Bjarnason og Rann- veig Briem hefðu þá stutt hann svo að hann hélt réttum áttum gegnum svartnætti angistarinnar. I janúar 1888 tók Einar höndum saman við nokkra Islendinga, er studdu Frjálslynda flokkinn í kanadískum stjórnmálum, og stofnaði blaðið Lög- berg og var hann síðan ritstjóri þess til loka Kanadadvalar sinnar. Hann kvæntist aftur í september 1888 íslenskri konu, Gíslínu Gísladóttur, og eignuðust þau fimm börn saman. Félagslíf Islendinga í Vesturheimi stóð með miklum blóma öll þau ár sem Einar dvaldist þar og var hann löngum nærri miðjum vettvangi atburða og átaka. Heimskringla og aðstandendur hennar studdu að málum íhalds- flokkinn kanadíska og í Lögbergi háði Einar grimmilegar blaðadeilur við Heimskringlumenn, ekki síst eftir að Gestur Pálsson gerðist ritstjóri blaðs- ins 1890 og síðar Jón Ólafsson. Flokkadrættirnir meðal Vestur-Islendinga voru heiftúðugir á þessum árum og skipuðust þeir í fylkingar í stórum dráttum eftir sömu línum og þeir studdu blöðin. Jafnvel bindindishreyfing- in var tvískipt og var Einar forystumaður í stúkunni sem Lögbergsmenn studdu. Trúmáladeilur settu mikinn svip á mannlífið og studdi Einar séra
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.