Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1996, Page 85

Andvari - 01.01.1996, Page 85
ANDVARI HINN LANGI OG SKÆRI HLJÓMUR 83 Jón Bjarnason og Hið evangeliska lútherska kirkjufélag íslendinga í Vest- urheimi í Lögbergi, en auk trúaráhrifa gegndi það félag mikilvægu hlut- verki til viðhalds íslensku þjóðerni. Únítarar og vantrúaðir áttu hins vegar vettvang á síðum Heimskringlu. Leikstarfsemi var töluverð meðal Islend- inga í Winnipeg á árum Einars þar og lék hann bæði sjálfur og stjórnaði leiksýningum. Árin í Ameríku urðu Einari ekki frjó til skáldskapar. Merk- ust frá þeim tíma er sagan Vonir, samin 1888 en kom út í Reykjavík 1890, °g lítið safn kvæða, Ljóðmæli, gaf hann einnig út í Reykjavík 1893. Engu uð síður urðu þessi ár honum mikilvægt mótunarskeið. Til viðbótar áhrif- um Brandesartímans í Danmörku komu nú áhrif engilsaxneskrar menning- ar og bókmennta á því skeiði sem síðar hefur verið kennt við valdatíma Viktoríu drottningar. Árið 1895 fluttist Einar heim til íslands með fjölskyldu sína og settist að í Reykjavrk sem meðritstjóri Björns Jónssonar við blaðið ísafold sem þá var sterkast pólitískt málgagn á íslandi. Par með var hann kominn í hóp áhrifa- niestu manna íslenskra stjórnmála sem kenndir voru við leiðtoga sinn Valtý Guðmundsson og nefndust í daglegu tali valtýingar. Á fyrstu árunum eftir heimkomuna kvað ekki heldur mikið að skáldskapariðkunum Einars. Auk ritstjórnarstarfanna flutti hann á næstu árum fyrirlestra um ýmis efni og gaf út sérstaklega, t.a.m. Vestur-íslendingar (Rvk. 1896) og Alþýðumenntun hér á landi (Rvk. 1901). Einnig lagði hann leiklistarstarfsemi lið og var meðal leikstjóra Leikfélags Reykjavíkur. Þegar vonir íslendinga um aukna þátt- töku í stjórn landsins jukust upp úr aldamótunum freistuðu báðir flokkarn- ir, valtýingar og heimastjórnarmenn, þess að styrkja áróðursstöðu sína með útgáfu blaða vítt og breitt um landið. Nú fluttist Einar norður á Akureyri °g varð þar ritstjóri málgagns valtýinga sem nefndist Norðurland. Hann rit- stýrði því 1901-04 en fluttist þá aftur til Reykjavíkur og varð ritstjóri Fjall- konunnar 1904-06. Þannig má segja að fyrsta áratuginn eftir heimkomuna væri Einar á miðjum vettvangi hinna pólitísku átaka sem ritstjóri stjórn- málablaða. Einnig gaf hann á þessum árum út sérstaka ritlinga um tiltekin Pólitísk deiluefni, Tildrög stjórnarbótarinnar (Ak. 1902), Ritsímamálið (Rvk. 1905) og Frjálst sambandsland (Rvk. 1907). Eftir að Einar lét af rit- stjórn Fjallkonunnar átti hann ekki hlut að ritstjórn pólitískra blaða nema ísafoldar um stutt skeið 1909. Hann var hins vegar ritstjóri nokkurra tíma- rita um bókmenntir og andleg málefni. Hann tók sæti í ritstjórn Sunnanfara 1900-01, var ritstjóri Skírnis 1908-09, meðritstjóri Iðunnar 1915-16 og stofn- aði tímaritið Morgun 1920 og stýrði því til dauðadags. Eftir að Einar lét af ritstjórn pólitískra blaða 1906 helgaði hann sig skáld- skap sínum og varð fyrstur íslenskra manna til að lifa á ritstörfum sínum einum. Hann lést í Reykjavík 21. maí 1938.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.