Andvari - 01.01.1996, Blaðsíða 104
102
ÁRNI SIGURJÓNSSON
ANDVARI
vitnað sé í ritdóm eftir Magnús Jónsson í Eimreiðinni (1921, 120). Yfirleitt
voru ritdómar um þessa bók þó vinsamlegir og einhvers staðar var tekið
fram að sagan um ódáinsveigarnar væri tilvalin lesning fyrir presta.
★
Árið 1923 birti Sigurjón Jónsson safn með þremur ævintýrum í lítilli bók
sem hann nefndi einfaldlega Æfintýri I. Bókin er kannski ekki síst merk
vegna þess að hún var myndskreytt af Jóhannesi Kjarval. Hafði hún að
geyma alllanga sögu um náttúruvætti nokkra, Konung íslands, sem hafði
hásæti á Snæfellsjökli og Öræfajökli og seiddi til sín menn frá Noregi til að
nema land. Einnig er minnst á skessu sem býr á suðvesturhorninu og étur
menn (ReykjavíE). Hugmyndirnar um náttúruvættir féllu vel að hug-
myndaheimi Kjarvals, og varpar sagan ljósi á verk hans, bæði myndverkin
og bækurnar. I tengslum við útgáfu Ævintýra birti dagblaðið Vísir viðtal
við Sigurjón og má af því skilja að sumum hefur þótt kverið kyndugt, jafnt
texti sem myndir, en myndirnar útskýrir skáldið vandlega fyrir blaðamann-
inum. Eftir því sem næst verður komist er þetta eina viðtalið við Sigurjón
sem birst hefur á prenti.
Skáldsögurnar
Árið 1921 sendi Sigurjón Jónsson frá sér stutta skáldsögu, sem nefnist
Fagri-Hvammur, allsérkennilegt verk, þar sem endurholdgunartrúin er
áberandi, en víða eru líflegir sprettir með sveitalífsmyndum inn á milli.5
Ása heitir stúlka í sögunni og hrífst hún af frásögn um mann sem fórnaði
lífi sínu fyrir náunga sinn. Hún verður skotin í pilti sem heitir Geiri og hitt-
ast þau á fallegum stað sem heitir Fagri-Hvammur og þar fylgjast þau með
álfum í dulmögnuðum sjónauka; þarna ætla þau að eiga framtíðarheimili
sitt.
Nú kemur önnur persóna til sögunnar og það er hann Jón á Hóli. Ása
segir að sér geðjist ekki að þessum kunningja Geira. „Það er svo kisulegt á
honum andlitið. Augun í honum eru svo lítil og stingandi. Hann er svo sæt-
máll. (...) Það er líka æfinlega vínlykt af þér, þegar þú kemur frá hon-
um,“ segir hún. Seinna fær Jón Geira til að skrifa upp á ábyrgðarskjal fyrir
son sinn, og reiknar þó með að hann muni verða gjaldþrota. Við þetta
missir Geiri eigur sínar og geðbilast. Ása hatar Jón fyrir hið illa verk upp
frá því, en þó bjargar hún honum frá því að drukkna í ísilagðri á og kostar
til þess lífi sínu, eins og hana hafði dreymt um forðum. í næsta kafla fær
lesandinn svo að vita að þetta fólk hafi allt lifað áður; í einhverri fortíð er
Ása nunna í klaustri þarna í dalnum, Geiri er ábóti og Ása elur honum