Eimreiðin - 01.07.1939, Blaðsíða 40
272
LITLI STÆRÐFRÆÐINGURINN
EIMREIÐIN
öðrum stað, sem er afskektur, mannlaus, lífvana, eða aðeins
gæddur framandi lífi. En þessi þrá hverfur fljótt, og þeir
verða fegnir að snúa aftur til hins ræktaða og auðsveipa lands.
Ég sá að húsið á fjallinu var tilvalinn bústaður. Því að þó
maður væri öruggur í „mannlegu“ umhverfi, var maður þó
ekki einn þar. Það var hægt að vera eins út af fyrir sig og
hver vildi. Nágrannar, sem ekki eru alveg ofan í manni, eru
beztu nágrannar, sem hægt er að fá.
Þeir sem bjuggu næstir okkur, þ. e. næstir að vegalengd,
voru mjög nærri okkur. Það voru í raun og veru tvær fjöl-
skyldur, sem bjuggu að kalla mátti í sama húsi og við. Önnur
var bændafjölskylda, sem hjó í lágreistri byggingu áfastri við
húsið, sem notað var sem íbúðarhús, vagnskýli, geymsla og
fjós. Hinir nágrannarnir — sem að vísu voru það aðeins,
þegar veðrið var nógu gott til þess að þau þyrðu að hætta sér
út úr bænum — voru eigendur hússins. Þau höfðu haldið
eftir lianda sér minni álmunni af þessu stóra L-laga húsi —
aðeins rúm tíu herbergi — en látið okkur eftir hin tuttugu.
Þau voru undarleg þessi hjón. Gamall maður — að minsta
kosti sjötugur — sem staulaðist um, starandi gráum, sljóum
augum kringum sig, og signora1) um fertugt. Hún var lítil,
mjög feit með örsmáar feitar liendur og fætur og mjög stór,
tinnusvört augu, sem hún notaði með allri leikni hinnar sönnu
leikkonu. Ef hægt hefði verið að beizla lífsþrótt hennar og
láta hann vinna eitthvert nytsamt verk, hefði verið hægt að
framleiða nægilegt rafmagn til að lýsa upp heila borg. Eðlis-
» fræðingarnir tala um að vinna orku úr frumeindinni. Þeir
ættu heldur að líta nær sér, reyna að finna aðferð til að nýta
þann feikna forða af mannlegri orku, sem safnast fyrir hjá
blóðríkum og fjörmiklum konum, sem ekkert hafa að starfa,
og fær svo miður æskilega útrás við þau skilyrði, sem nú-
verandi þróunarstig hinnar þjóðfélagslegu og vísindalegR
skipulagningar veitir þeim: Með afskiftum af einkamálum
manna, með því að æsa upp sitt eigið tilfinningalíf, hugsa u®
ástir og elska, með því að ónáða menn og tefja þá við störf sín.
Signora Bondi fékk meðal annars útrás íyrir umframorku
1) Þ. e.: frú.