Eimreiðin - 01.07.1939, Blaðsíða 64
296
LITLI STÆRÐFRÆÐINGURINN
EXJIREIÐIN
greindu aðferðir; hann mun hafa óþrjótandi auð af reynslu að
baki sér. G,erum ráð fyrir, að hann hefði fæðst, þegar Stone-
henge1) var bygt; hann hefði þá getað eytt heilli mannsæfi í
að finna undirstöðuatriði, hann hefði þá aðeins haft óljósan
grun um það, sem hann nú hefur tækifæri til að sanna. Ef
hann hefði fæðst á víkingaöldinni, hefði hann orðið að etja
við alla þá byrjunarörðugleika, sem áttu rót sina að rekja til
ófullkominnar likingarfræði. Hann hefði til dæmis verið mörg
ár að læra þá list, að deila MCMXIX í MMMCCCCXXXVIII. Á
fimm árum getur hann nú á dögum lært það, sem margar kyn-
slóðir þurfti til að finna upp.
Og ég hugsaði um þau örlög, sem þeim mönnum eru búin,
sem fæddir eru á svo gersamlega röngum tíma, að þeir fá ekki
leyst nein þýðingarmikil verk af höndum. Ef Beethoven hefði
fæðst i Grikklandi, hefði hann orðið að láta sér nægja að leika
mjóróma lög á flautu eða lýru; í því umhverfi hefði hann
naumast megnað að gera sér grein fyrir eðli samhljómanna.
Drengirnir í garðinum fyrir neðan voru nú hættir að teikna
lest, en farnir að leika sér í járnbrautarleik. Þeir þrömmuðu
fram og aftur, stútmyntir ineð útblásnar kinnar, eins og kerúb-
ískt tákn vindsins. Robin blés og stundi eins og eimvagn, og
Guido, sem hélt aftan í treyjuna hans, trítlaði á eftir honuni.
Þeir gengu áfram, aftur á bak, námu staðar á ímynduðuni
stöðum, skiftu um spor, brunuðu yfir brýr, þutu í gegnum
jarðgöng, lentu í æfintýralegum árekstrum og ultu af sporun-
um. Hinn ungi Arkimedes virtist vera jafn hamingjusamur
og litli Ijóshærði villimaðurinn, Fyrir fáum mínútum hafði
hann verið önnum kafinn að glíma við Pyþagórasarreglu. Nú
þrammaði hann þindarlaust eftir imynduðum járnbrautar-
teinum. Hann var fullkomlega ánægður með að trítla fram og
aftur milli blómbeðanna, súlnanna undir svölunum og út og
inn um dimm göng lárviðartrésins. Þó að hann væri á leið-
inni að verða nýr Arkimedes, varnaði það honum ekki þess að
vera venjulegur, glaðlyndur drengur. Ég hugsaði um þessa
merkilegu gáfu, ólíka og aðgreinda frá öðrum hlutum vitund-
1) Rúst af fornri steinbyggingu i Englandi, óvíst hverskonar, en senni-
lega einskonar sóldýrkunarmusteri.