Eimreiðin - 01.07.1939, Blaðsíða 104
336
FORNRITAÚTGÁFAN
EIMREIÐIN
ins hefur félagsstjórnin það eitt fyrir augum, að útgáfan þurfi
ekki að stöðvast sökum fjárskorts.
En eru þá fornritin dýr samanborin við aðrar bækur, sem
hér hafa verið gefnar út samtímis þeim?
Ef dæma ætti eftir hinum endurteknu kvörtunum um verð
fornritanna, mætti ætla, að þau væru mun dýrari, miðað við
stærð, en bækur gerast hér alment. Þessu fer þó harla fjarri,
enda viðurkennir Þóroddur á Sandi það. Þau eru þvert á móti
með allra ódýrustu bókum þó aðeins sé litið til stærðar, en
alveg gengið fram hjá hinu, hversu vönduð útgáfan er. Um
þetta getur hver sá sannfærst, sem vill leggja á sig það ómak
að bera verð fornritanna saman við verð annara bóka, sem
út hafa verið gefnar hér á landi á síðustu árum. Eins og áður
er sagt kostar hvert bindi af fornritunum 9 kr. heft, en meðal-
bindi er sem næst 29 arkir auk korta og mynda. Verð hverrar
arkar er því 31 eyrir, ef ekkert er reiknað fyrir kort og myndir,
sem þó hleypa kostnaðinum mjög fram.
Til samanburðar hef ég tekið til athugunar verðlag á 20 bók-
um, sem út hafa komið hér á landi samtímis Fornritunum.
Voru þær valdar af handahófi af afgreiðslumanni í bóka-
verzlun og eingöngu teknar þær bækur, sem sambærilegar
voru fyrir stærðar sakir. Og hvað mundi hafa komið i ljós? —
Aðeins ein þeirra (gefin út af Bókadeild Menningarsjóðs) var
ámóta ódýr og Fornritin, miðað við arkafjölda, eða ca. 30 aur.
hver örk.
Einna ódýrust þar næst er nýútkomin bók af svipaðri stærð
og Fornritin. Er hún í auglýsingum talin „mjög ódýr“ miðað við
stærð, og mun það rétt vera. Verðið er þvi sem næst 38V2
eyrir pr. örk, og er hver örk í Fornritunum því um 20%
ódýrari.
Til beggja þessara bóka var ótvírætt mun minnu kostað en
til fornritanna. Annari fylgdu t. d. engar myndir, hinni nokkr-
ar myndir af höl'undi.
Af framangreindum 20 bókum voru 10 prýddar ýmsum
myndum, svipað og Fornritin. Dálítið sérstaklega stóð á um
3 þær dýrustu (70—90 aur. hver örlc), og vil ég því sleppa
þeim hér. — Verð og blaðsíðutala hinna 7 er svo sem hér
segir: