Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1939, Page 72

Eimreiðin - 01.07.1939, Page 72
304 LITLI STÆRÐFRÆÐINGURINN eimheiðin aðra augnalokanna brutust tárin fram, þau héngu þar andar- tak og ultu svo niður kinnarnar. Varirnar titruðu, og ég sá, að hann átti eri'itt með að halda þeim kyrrum. „Við skulum koma,“ sagði ég aftur. Andlitið, sem hafði verið stirðnað af sorg, fór nú skyndi- lega að titra; hann opnaði augun og í gegnum tárin lagði ógur- lega heift. „Ég drep hana,“ sagði hann, „ég drep hana. Þegar ég hugsa til þess, að hann kastaði sér fram af, féll niður .. Hann lyfti höndunum, sveiflaði þeim ofsalega niður og stöðv- aði þær svo skyndilega í axlarhæð. „Og rotaðist." Hann skalf- „Hún ber eins mikla ábyrgð á því eins og ef hún hefði hrint honum niður. Ég drep hana.“ Hann beit saman tönnunum. Reiðin er eldri eins sársaukakend og sorgin. Það er huggun í að hyggja á hefndir. „Talið ekki svona,“ sagði ég. „Það er gagnslaust. Það er heimskulegt. Og hvað væri unnið við það?“ Hann hafði fengið svona köst áður, þegar sorgin varð honum ofviða, og hann reyndi að flýja hana. Reiðin hafði verið auð- veldasta leiðin til flótta. Ég hafði áður orðið að fá hann til að snúa aftur á hina erfiðu leið sorgarinnar. „Það er heimsku- legt að tala svona,“ sagði ég aftur og leiddi hann burtu í gegn- um óviðfeldin völundarhús grafreitanna, þar sem dauðinn virðist enn hræðilegri en hann er í raun og veru. Þegar við vorum komnir út úr kirkjugarðinum og genguni niður frá San Miniato í áttina til Piazzale Michelangelo, var hann orðinn rólegri. Reiðin hafði þorrið og orðið aftur að þeirri sorg, sem hún hafði fengið allan styrk sinn og ofsa úr. Á Piazzale námum við staðar stundarkorn, til þess að horfa niður yfir bæinn í dalnum fyrir neðan okkur. Það var skýja- far á loftinu — stórir feldir, hvítir, gyltir og gráir, á hreyfingu; og á milli þeirra bláir, gagnsæir blettir. Með litla turninn í augnahæð okkar birtist turnhvelfing dómkirkjunnar i öllum sínum stórfenglega skýrleika, í ofurmagni og loftkendum þrótti sínum. Á brún og rósrauð þölc bæjarins helti kvöldsólin mildu geislaflóði sínu, og turnarnir virtust skreyttir og húð- aðir með gömlu gulli. Ég hugsaði um alla þá menn, sem höfðu lifað hér — látið eftir sig sýnileg tákn anda síns og skapað furðulega hluti. Ég hugsaði um barnið, sem hafði dáið. Gísli Ólafsson þýddi.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.