Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1939, Page 80

Eimreiðin - 01.07.1939, Page 80
312 ÍÞRÓTT ÍÞRÓTTANNA — MÁLSNILDIN eimreiðin Svo segir Þorsteinn Erlingsson: Það er likt og ylur í ómi sumra braga. Mér liefur lilýnað mest á þvi marga kalda daga. Sá ylur gerir betur en að jafnast á við reykjaryl og dans- velgju, og er vísnaylurinn ódýrari en þau og engi heilsuspillir. Það lætur að líkindum, að því meiri íþróttamaður er skáldið sem það getur leikið sér að fleiri háttum og er þar að auk orðsnjalt í sundurlausu máli. Ljóðskáld eru eigi einhlít til fullrar frægðar, nema þau njóti tónskálda, sem setja vængi á kvæðin, ef svo mætti að orði kveða, eða þá visuna. Og á hinn bóginn verða tónskáld að njóta stuðnings ljóðasmiða, til þess að sönglögin njóti sín. Hvor þessara aðilja gefur hinum byr undir báða vængi. Það gengur svo í lífinu, að gefendur verða þiggjendur og þiggjendur gefendur. Úr því að ég ræði um þessi mál á víð og dreif, vildi ég skjóta einni spurningu til sönglagasmiða vorra: Hvað veldur því» að engir tónlistarmenn semja lög við hætti kvæða vorra, sem eru ram-íslenzk, svo sem dróttkvæða hætti, kvæðahætti Einars Benediktssonar og Stephans G. Stephanssonar? Mér dettur í hug, að lög við þau kvæði gætu orðið AÚðlíka einkennileg og frumleg sem kvæði slíkra höfunda eru máttug og stílföst. Er það svo, að tónskáld vor sé máttlítil og ófrumleg? Eða er hitt heldur, að kvæði höfundanna, sem ég nefndi, sé þannig» að lög nái eigi yfir þau? Séra Bjarni Þorsteinsson hefur gert lög við órímað mál — hátíðasöngvana, og skilst mér, að þar og þá hafi hann rutt nýja vegi meðal vor. Kvæði í fastbundnu sniði, t. d. Einars Benediktssonar, virðast bíða eftir því að fá lög við sitt hæfi. Ég ætla að engin takmörk geti verið fyrir fjölbreytni laga — sönglaga — fremur en fyrir fjölbreytni hátta. Ég ætla, að frumleg og einstök hrynj- andi íslenzkunnar í Ijóði ætti að geta fætt af sér jafneinstaka lagagerð, þannig, að þær féllust í faðma, fyllilega samræmdai'. íþrótt tungunnar birtist bæði í glæsileik og einfaldleik, og veldur sú auðlegð fjölbreytni og skrautlegð. Taka má til dæniis stíl Jónasar Hallgrímssonar, sem er einfaldur, þ. e. látlaus.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.