Búfræðingurinn - 01.01.1942, Síða 22
20
B U F RÆÐINGURINN
kg, en ársþvágið um 2300 kg — eða mykjan alls um 10500
kg. Þetta á við nýjan áburð. Við geymsluna rýrnar þvagið lítið
eða ekkert, ef það er geymt í loft- og lagarheldri þró, en hinn
fasti áburður rýrnar ávallt meira eða minna.
Það leiðir af sjálfu sér, að magn áburðarins og hlutfallið
milli saurs og þvags er mjög mismunandi. Fer það mjög eftir
fóðrinu, hveijsu mikið kýrin drekkur o. fl. Getur hér verið að
ræða um mismun einstaklinga, enn fremur mismun bæja,
og ársmismunur getur einnig komið í ljós. Enn fremur er
mjög erfitt að mæla nákvæmlega magn saurs og þvags, því
að það blandast jafnan að nokkru í flórnum. Það er þvi mjög
örðugt, ef ekld ókleift, að gefa upp tölur um magn kúamykju
og annarra tegunda búfjáráburðar, sem hafi noklcurn veginn
ahnennt gildi. Skoðanir manna eru og mjög skiptar um þetta
atriði. Flestir telja magn kúamykjunnar um 10 tonn yfir
árið, en hlutföllin, sem upp eru gefin fyrir saur og þvag, eru
misjöl'n. Sumir telja saur 8000 kg og þvag 2000 kg, aðrir saur-
inn 7000 kg og þvagið 3000 kg, og enn aðrir eru þarna á milli.
Hér verður miðað við áðurnefndar tölur úr athugununum
1940—1941, en það er 8200 lcg af saur og 2300 lcg af þvagi,
miðað við nýjan áburð, alls IOV2 tonn.
Ödegaard (norskur) gerir ráð fyrir 7000 kg af saur og
3000 kg af þvagi, en á tilraunastöðinni í Aarslev i Danmörku
var saurinn um 8500 kg, en þvagið um 3700 kg, miðað við
nýjan áburð.
Samkvæmt tilrauninni á Hvanneyri var magn saursins á
sólarhring að sumrinu aðeins um helmingur al' vetrarfrám-
leiðslunni, enda voru kýrnar, eins og áður er sagt, úti um
helming sólarhringsins. En liins vegar var þvagmagnið, sem
safnaðist daglega, heldur meira yfir sumarmánuðina. Þetta
bendir í þá ált, að þvagmagnið alls að sumrinu muni vera
um það bil tvöfalt að magni til, miðað við vetrarþvagið á
sarna tíma. Þetta er mjög athyglisvert, einkum þegar þess er
gætt, hve auðugt sumarþvagið er tiltölulega af köfnunarefni.
Rregður þetla skýru Ijósi yl'ir ])á gömlu og nýju reynslu
márgra bænda, að sumaráburður sé góður og mun sterkari
en vetraráburður.
Me&alefnamagn kúamykju er um 0,5% köfnunarefni, 0,1%
fosfórsýra og 0,6% lcalí, en vatnið er um 85,0%.
Aðaleinkenni lcúamgkju eru þessi auk þeirra, sem hafa