Búfræðingurinn - 01.01.1944, Page 48
B Ú F R Æ Ð I N G U R I N N
46
af hverju korni, en þar, sem sáðmagn er niinna. Eins kemur hér
til greina sáðdýpi og frjósemi jarðvegsins. Djúp sáning gefur gisn-
ari akur en liæfilega grunn. Frjósamur jarðvegur eða góð nær-
ingarskilyrði gefa fjölstofnaðri plöntur upp af hverju korni en þar,
sem frjósemi vantar. Venjulega koma 2—4 kornstrá upp af hverju
korni, og fer þetta eftir skilyrðum og svo afbrigðum hyggsins, sem
eru töluvert misjöfn að ræktunarhæfni.
Til er bæði vetrar- og vorbygg. Það síðarnefnda hefur einungis
verið ræktað hér, bæði tvíraða og scxraða bygg. Vetrarbygg
hefur ekki verið reynt hér, en talið cr, að það sé næmara fyrir
sjúkdómum, einkum ryðsveppum, en þeir geta dregið þroska þess
niður. Vetrarbygg hefur dálítið verið ræktað í Danmörku, en víðast
er þvi hætt. Vetrarbyggi er sáð síðari hluta sumars eins og vetrar-
rúgi og þroskast næsta sumar. Það nær fyrr þroska en vorsáð
bygg, og mælti jafnvel ætla, að það væri unnt að rækta það hér
á landi, en slíkt þarf að reyna og verður vafalaust gert, þegar tök
verða á þvi að ná í útsæði.
Hvernig byggið hefst við yfir sprettuskeiðið, er æði misjafnt.
Ef sáð er hæfilega snemma í góða jörð, kemur það upp eftir 9—12
daga frá sáningu. En svo hefur og líka komið fyrir, að spírunin
hefur tekið allt að 3 vikum. Snemmsáið sexraða hygg skriður
venjulega 1.—10. júlí og er þroskað frá 23. ágúst til 10. sept., en
svo getur það einnig komið fyrir, að þroskun verði eigi fyrr en
eftir miðjan september.
c. Helztu cifbrigði.
Á ])eim afbrigðum af sexraða byggi, sem reynd hafa vcrið til þrosk-
unar á undanförnum árum, er litill munur, bvað sprettutíma og hita-
kröfur snertir. En ])ó hafa þau sýnt nokkurn inun, hvað þetta snertir,
og einnig i hæfni fyrir þau skilyrði, er þau hafa verið rælituð við. Og
nokkur munur er á, hve þau gefa þungt og fallegt korn. Hálmurinn er
finn eða grófur eftir afl)rigðunum. Þó fer það líka eftir veðrinu, áburði
og jarðvegi. Hálmurinn vcrður alltaf grófari, ef korngresið hefur lagzt
í legu, og venjulega verri en á uppréttu korni. Af tviraða byggi hafa
nokkur afbrigði verið reynd, og hafa þau öll reynzt óviss til þroskunar.
En þó liefur Abed-Ma jahvgg gefið mciri uppskeru i góðum árum en
sexraða bygg.
I töflu II er sýndur árangur af nokkrum beztu afbrigðunum af
byggi frá árunum 1929—1938. I reiti þá, sem notaðir hafa verið við
Jæssar samanburðartilraunir með byggafbrigði, liefur verið sáð 18.—20.
maí öll árin. Aburður jafn og rælitun farið fram á meðalfrjórri leir-
móajörð Ivikurblandinni. Forræktun venjulega 1—2 ár kornrækt.