Búfræðingurinn - 01.01.1944, Síða 95
11 U F R ,U Ð I X G U R 1 X N
93
oft hæfilegur 200 kg af kalíi, 350 kg af superfosfati og 150 kg af
kalksaltpétri, — borið snemma á, og bezt að bera á raðirnar, að
niinnsta kosti saltpéturinn. Þetta gras sprettur mjög ört og sctur
oft fyrstu öxin siðast i mai eða fyrst i júni. Venjulega er það full-
þroskað 2.—10. ágúst og i beztu árum nokkru fyrr. Þroskast nokkuð
misjafnt, og vill því stundum spillast fræ við uppskeruvinnuna.
Bezt er að -slá frægresið, þegar það er döggvott, og binda jafnóðum.
Ef það er mjög misþroskað, getur verið gott að hrista bindin á segl
eða poka, áður en þau eru sett í slcrýfi. Næst þá i bezt þroskaða
fræið. Fræið er eitt smáax, flatt, ljósleitt á lit. Týtan á fræinu er
knébeygð og kemur fram milli hinna silkihærðu ytriagna. 1000
fræja jtyngdin er 1,052 g og er því heldur jjyngra en erlent fræ.
Meðalspírtin hefur orðið 75,8%, en mesta grómagn 98%. Fræupp-
skeran hefur mest orðið á Sámsstöðum 450 kg af hreinsuðu fræi al'
ha. En oft er uppskeran ekki meiri en 250—300 kg. Hálmuppskerán
getur oft orðið yfir 40 hestar af ha. Hálmurinn er dágóður til fóð-
urs, en litt er hann ætilegur fyrir kýr, einktim eftir votviðrasumur.
Fræ iná taka af háliðagrasi 0—8 ár með sæntilegri frætekju, ett
hún er mest fyrstu 3—4 ár eftir sáningu. Ef logna- og rigninga-
samt er um frjóvguiiartímann, vilja koma í slað fræjanna gras-
drönglar (meldrojur). Rýrir það gæði fræsius. En þetta hefur sjald-
an orðið og alltaf mjög lítið. Ryðsveppir eru og gjarnir á að hein,-
sækia btöð háliðagrassins, en jjað er ekki nema í votviðratið, og
meðfram af þvi er hálmurinn þá lélegt og ólystugt fóður. Það eru
ekki til neinir sérstakir stofnar af háliðagrasi, sent sýni neinn
mun við ræktun. Háliðagras, sem ég fékk frá Svalöv í Sviþjóð 1928,
virðist mér meira jafnþroska en verzlunarfræ, seitt er aðallega frá
Finnlandi. Eigi hefur orðið vart við skordýr það, sem ásækir há-
liðagrasfrærækt í Danmörku og Noregi (Oligotropus alopecuri) og
eyðileggur oft frærækt af því þar. Fræið er dálílið erfitt að hreinsa,
og fylgja því oft geldar agnir, sém líta út eins og þroskuð fræ,
fljótt á litið.
2. Hávingull.
Hávingull hefur vaxið vel til fræræktar á móajörð, en gefur ágætt
fræ og góða uppskeru á sandjörð, og er liklega frærkt auðveldari
þar vegna þess, að þar verður það fyrr þroskað. Aburðarmagn og
áburðartimi sainur og fyrir háliðagras, miðað við raðræktun, en
hún gefur mesta og bezta fræuppskeru. Útsæðismagn á ha við rað-
sáningu er 7—8 kg, en rúmlega helmingi meira við dreifsáningu.
Gefur venjttlega góða fræuppskeru árið eflir sáningu, og fræ er
hægt að taka af sömu sáningtt 4—5 ár, en úr þvi svarar það ekki
fyrirhöfn. Hávingullinn þroskar sjaldan fræ fyrr en um 20. ágúst,