Ritmennt - 01.01.2003, Side 23
RITMENNT
BJÖRN GUNNLAUGSSON OG NÁTTÚRUSPEKIN í NJÓLU
ir löngu verið gerð ítarleg skil og verða þær því eklci teknar til
frekari umfjöllunar hér.23
Arið 1836, tveimur árum eftir að ritgerð Björns um landmæl-
ingarnar birtist, gaf hann út töflur um göngu sólar hér á landi,
séð frá þremur mismunandi breiddarstigum [18]. Er ekki að efa,
að töflurnar hafa komið íslenskum bændum að góðu gagni. í
þessu sambandi er þó rétt að hafa í huga, að urn þessar mundir
var verið að vinna að útgáfu fyrsta íslenska almanaksins, sem
var almanak fyrir árið 1837. Elcki er að sjá, að Björn hafi komið
nálægt því verki og fóru allir útreikningar fram í Kaupmanna-
höfn. Fyrstu árin voru þeir í höndum stjörnufræðingsins C.F.R.
Olufsens.24
Næstu sumur var Björn mjög upptekinn við þríhyrningamæl-
ingarnar, en árið 1842 sendi hann frá sér það rit, sem er tilefni
þessarar greinar og rætt verður nánar í síðari köflum. Það var trú-
ar- og fræðiljóðið Njóla, sem vakti strax mikla athygli meðal
lærðra sem leilcra [19]. Hvort sem það var tilviljun eða elcki, þá
kom Njóla út sama árið og Stjörnufræði Ursins í þýðingu Jónas-
ar Hallgrímssonar, og það eitt gerir árið 1842 að einu merkasta
ári í sögu alþýðufræðslu hér á landi.25 Hvað ritsnilld varðar þol-
ir ljóð Björns að sjálfsögðu engan samjöfnuð við þýðingu Jónas-
ar, en áhrif Njólu á almenning voru ekki minni en bókar Ursins.
Ekki er heldur að efa, að Jónas hefur orðið fyrir áhrifum frá Birni,
enda hafði hann verið nemandi Björns á fyrstu Bessastaðaárum
hans. Hugur Jónasar til kennara síns lcemur meðal annars fram í
því, að hann tileinkar honum þýðinguna á Stjörnufræðinni „í
virðingar og þakklætis skini." Hins vegar er rétt að rninna á, að
þeir Björn og Jónas voru ekki ávallt sammála um menn og mál-
efni [77].
23 I'ótt milcið liafi verið ritað um landmælingar Björns (sjá t.d. [50, 53, 72, 76,
85, 97]) er eftirtektarvert, að enn hefur elclci verið birt nein fræðileg greining
á mælingunum sjálfum eða útreilcningunum, sem þeim fylgdu.
24 Christian Friis Rottbull Olufsen (1802-55) varð staðgengill Scliumacliers eft-
ir að Tliune lést og síðan eftirmaður lians sem prófessor við Hafnarháskóla og
forstöðumaður stjörnuturnsins í Kaupmannahöfn. Hann annaðist útreikning
íslenska almanaksins frá upphafi, 1837, til dauðadags. Til gamans má geta
þess, að Olufsen var sá sem hlaut gullverðlaun Hafnarháskóla f stærðfræði
næst á eftir Birni Gunnlaugssyni. Það var árið 1824 (stærðfræðiverðlaunin
voru ekki veitt 1819, 1821, 1822 og 1823).
25 Bók Ursins heitir fullu nafni Stjörnufrædi, létt og handa alþýðu [92].
Jónas Hallgrímsson.
Georg Frederilc Iírúger Ursin.
19