Ritmennt - 01.01.2003, Page 58

Ritmennt - 01.01.2003, Page 58
EINAR H. GUÐMUNDSSON RITMENNT Þótt þessi dómur Benedikts sé í hæsta máta ósanngjarn og sumar full- yrðingar hans beinlínis rangar, þá er því ekki að neita, að lítið fer fyr- ir vísindalegum rökum hjá Birni um vitsmunalíf á öðrum hnöttum. En þar er Björn reyndar í góðum félagsskap. Það voru ekki aðeins þeir Flammarion, sem létu sig dreyma um íbúa annarra hnatta, heldur á hið sama við um marga andans jöfra á ýmsum tímum. í hópi þeirra, sem f jölluðu opinskátt og án alba sannana um líf á öðmm hnöttum, vom menn eins og Levkippos, Demókrítos, Epikúros, Lúkretíus, Nikulás frá Kúsa, Brúnó, Kepler, Huygens, Newton, Leibniz, Pope, Berkeley, Wright, Kant, Lambert, Herschel feðgarnir, Bode, Arago, Laplace og Brewster, auk fjölda minni spámanna.91 Engar áreiðanlegar vísbendingar hafa enn fundist um líf á öðmm hnöttum, en áhugi manna á þessu efni hefur síst dvínað með tíman- um. í því sambandi má meðal annars benda á, að nú á dögum telja margir vísindamenn sennilegt að líf, jafnvel vitsmunalíf, kunni að þrífast á reildstjörnum í öðmm sólkerfum og eitt af helstu verkefn- um Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) um þessar mund- ir er einmitt að leita að lífi í óravíddum himingeimsins [35c]. 91 Sjá t.d. [35]. Levkippos (um 430 f.Kr.), Dcmókrítos (um 460-371 f.Kr.) og Epí- kúros (341-270 f.Kr.) voru allir grískir heimspekingar. Rómverjinn Títus Lúkretíus Karus var uppi um 60 f.Kr. og guðfræðingurinn og náttúruspeking- urinn Nikulás frá Kúsa frá 1401 til 1464. George Berkeley (1685-1753) var írskur heimspekingur. Stjörnufræðingurinn John EW. Herschel var sonur W. Herschels. Stjörnufræðingurinn Johann Elert Bode (1747-1826) er m.a. þekkt- ur fyrir stjörnukort sín. Dominique Francois Arago (1786-1853) var virtur eðlisfræðingur og stjörnufræðingur og áhrifamaður í frönsku vísindasamfé- lagi. David Brewster (1781-1868) var þeklctur skoskur eðlisfræðingur. Bók Jóhannesar Keplers (1571-1630) Somnium, seu ... de astronomia lunari (Draum- urinn, eða stjörnufræði tunglsins), sem kom út í Slesíu 1634, fjallar um ferða- lag til tunglsins og hugsanlegar lífverur sem þar sé að finna. Hún er m.a. at- hyglisverð vegna þess, að aðalsöguhetjurnar, Duracotus og Fiolxhilde, eru fs- lendingar [40]. Fjallað er stuttlega um líf á öðrum hnöttum í Landaskipunar- fræðinni, Vinagleði og Náttúruskoðara (þar sem Jón lærði vitnar neðanmáls í Stierne-Katechismus Soeborgs), en þekktasta rit á íslensku um þetta efni fyr- ir 1900 er sennilega Úranía Flammarions frá 1898. Einnig er vert að minna á dispútatíu Stefáns Björnssonar reiknimeistara, Dissertatio spectans ad physi- cam coelestam, qua sufficienter, aut certe summa cum verisimilitudine a priori probatur dari in corporibus coelestibus creaturas rationales, montes et aqvas (Fyrirlestur varðandi eðli himintungla, þar sem leiddar eru út frá kennisetningum nægar eða a.m.lc. mjög sterkar líkur að því að á himinhnött- um séu skyni gæddar verur, fjöll og höf), sem kom út í Höfn árið 1760 og er greinilega rituð undir áhrifum frá Leibniz og fylgismönnum hans [38]. Að lokum má geta þess, að nú á dögum er fjallað um leitina að lífi á öðrum hnöttum í svo til öllum bókum um stjörnufræði fyrir byrjendur. 54
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Ritmennt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritmennt
https://timarit.is/publication/859

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.