Ritmennt - 01.01.2003, Page 61

Ritmennt - 01.01.2003, Page 61
RITMENNT BJÖRN GUNNLAUGSSON OG NÁTTÚRUSPEKIN í NJÓLU Af kvæðinu má ráða, að Björn hefur í meginatriðum aðhyllst þá efniskenningu, sem kennd er við kraftahyggju (e. dynamism). Samkvæmt henni ber ekki að líta á efnið sem samsett úr óskipt- anlegum og hreyfanlegum atómum, heldur sem afleiðingar stöðugrar baráttu fráhrindikrafta og aðdráttarlcrafta. Þótt þessari hugmyndafræði hafi fyrst og fremst verið stefnt gegn atómhyggj- unni (e. atomism), þá má rekja vissa þræði hennar til atómkenn- ingar Newtons, eins og hún er fram sett í spurningunum aftan við bók hans, Opticks, sem lcorn út í nokkrum útgáfum.94 Ef vel er að gáð, má einnig sjá votta fyrir áhrifum frá eindakenningu Leibniz.95 Áður en rætt verður um kraftakenningu Björns í frekari smá- atriðum, er rétt að huga nánar að forsögunni. Upphafsmaður kraftahyggjunnar er venjulega talinn króatíski raunvísindamað- urinn og jesúítinn Rudjer Josip Boákovic (1711-87), en hann birti kenningu sína um þetta efni í ritinu Theoria Philosophiae Naturalis (Kenning um náttúruspeki) sem kom út í Vín árið 1758.96 Svipaðar hugmyndir höfðu reyndar komið fram noklcrum árum áður hjá Englendingnum Gowin Knight (1713-72), án þess að þær vektu sérstaka athygli annars staðar en í Englandi.97 94 Hugmyndir Newtons um innsta eðli efnisins er einkum að finna í spurning- unum („Queries"] aftan við ljósfræði hans, sem kom fyrst út 1704. Atóm eru tekin til sérstakrar umfjöllunar í 31. spurningu, sem Newton bætti við síð- ustu útgáfuna árið 1730. Þeim, sem vilja kynna sér sögu atómhyggju og atóm- kenninga, má t.d. benda á einfalt yfirlit hjá [13]. Mun ítarlegri umfjöllun er að finna hjá [36] og [62b]. 95 Þrátt fyrir nafnið, telst eindakenning (þ. Monadologie) Leibniz ekki til atóm- hyggju í venjulegum skilningi. Um eind (þ. Monad) Leibniz má t.d. lesa í riti Ágústs H. Bjarnasonar, Saga mannsandans V: Vesturlönd (Reykjavík 1954, bls. 245-59), og í flestum ritum um sögu heimspekinnar. í þessu sambandi má einnig minna á greinar Þorleifs Þorleifssonar bóksala (1733-82) til stuðn- ings eindakenningu Leibniz í tímaritinu Kiebenhavnske nye Tidender om lærde og curieuse Sager á tímabilinu desember 1755 til júní 1756 (sjá [56], bls. 91). 96 Um ævi og kenningar Boskovics má lesa í grein Z. Markovics í Dictionary of Scientific Biography, Vol. 2, ritstj. C.C. Gillispie. New York 1980, bls. 326-32. 97 Knight starfaði sem yfirbókavörður í British Museum, en lagði stund á nátt- úruspeki í frístundum. Hugmyndir sínar um efnið setti hann fram í ritinu An Attempt to demonstrate, that all the Phænomena in Nature may be ex- plained by two simple active Principles, Attraction and Repulsion (London 1754). Um Knight má lesa hjá [32b]. 57
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Ritmennt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritmennt
https://timarit.is/publication/859

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.