Ritmennt - 01.01.2003, Page 63
RITMENNT
BJÖRN GUNNLAUGSSON OG NÁTTÚRUSPEKIN í NJÓLU
leika með hugmyndum þeirra Björns og Faradays um krafta og
eiginleika þeirra.100
íslendingar hafa sennilega frá upphafi haft spurnir af frum-
spekilegum vangaveltum um deilanleika efnisins. Slílcar hug-
myndir hafa væntanlega borist til landsins með erlendum ritum,
og íslenskir stúdentar hafa auk þess kynnst þeim í heimspeki-
náminu við Hafnarhásltóla. Þetta efni var hins vegar elcki mikið
til umræðu í íslenskum ritum fyrr en líða tók á seinni hluta nítj-
ándu aldar. Þó má að sjálfsögðu finna eldri rit, þar sem efnis-
kenningar ber á góma. Skúli Thorlacius mælir til dæmis gegn
óendanlegri líkamlegri deilingu (divisio physica) í áðurnefndri
ritgerð sinni Dissertatio metaphysica de mundo frá Í766101, og
Jón lærði ræðir um svipaða hluti neðanmáls í Náttúruskoðara.
Jón tekur Gunnerus sem dæmi um höfund, er færir rök gegn
óendaniegri deiiingu efnisins. I því sambandi nefnir hann einnig,
að sumir teiji að til séu
... vissir fyrst-verandi partar sérhvers líkamlegs hlutar, af hverjum hann
samsettur væri, og kynni þess vegna ei lengra að deilast en til þeirra, þar
þeir af náttúru sinni ódeilanlegir væru ... og nefna þá Monader eða Ein-
verur.
Sem dæmi um höfunda, sem telja óendanlega deilingu efnisins
mögulega, bendir Jón hins vegar á þá Euler og Wallerius.102 í Eðl-
isfræði Fischers frá 1852 er einnig fjallað stuttlega um skiptingu
líkama og tekið fram, að hún sé tvenns konar, annars vegar
„stærðafræðisleg" og hins vegar „aflfræðisleg". Aftur á móti er
ekki minnst einu orði á atóm í bókinni.103
100 Sjá t.d. greinarnar „A Speculation Touching Electric Conduction and the
Nature of Matter" (Philosophical Magazine xxiv, 1844, bls. 136) og
„Thoughts on Ray-Vibrations" (Philosophical Magazine xxviii, 1846, bls.
188). Báðar greinarnar eru endurprentaðar í verkinu M. Faraday: Ex-
perimental Researches in Electricity, Dover 1965.
101 Sjá [56], bls. 133-34.
102 í neðanmálsgreininni, bls. 31-32 í Náttúruskoðara, vitnar Jón í ritin
Institutiones metaphysicæ scholis academicis potissimum adcommodatæ
(Kaupmannaliöfn 1757) eftir Gunnerus, Lettres á une princesse d’Alle-
magne sur divers sujets de physique et) de philosophie (St. Pétursborg
1768-72; dönsk þýðing 1792) eftir Euler og Systema metaphysicum
(1750-52) eftir Wallerius.
103 Sjá Eðlisfræði Fischers, bls. 14. Hjá [34b], [36] og [28] má lesa um hinar
margvíslegu skoðanir manna á skiptingu efnis og rúms. Einnig má benda á
59