Ritmennt - 01.01.2003, Page 64

Ritmennt - 01.01.2003, Page 64
EINAR H. GUÐMUNDSSON RITMENNT Árið 1856 brutust út í íslenskum blöðum miklar deilur um smáskammtalækningar. Þær stóðu milli Jóns Hjaltalíns Jónsson- ar (1807-82) landlæknis og íslenskra hómópata.104 Landlæknir gaf einnig út harðorðan bæl<ling, Vísindin, reynslan og homöo- patharnir [59a] þar sem hann varaði almenning við starfsemi smáskammtalækna. Árið eftir svöruðu ýmsir hómópatar í sömu mynt, þar á meðal Magnús Jónsson (1809-89) prestur á Grenjað- arstað, sem sendi frá sér ritlinginn Dr. Hjaltalín og vísindin, eða svar upp á rit hans: „Vísindin, reynslan og homöopatharnir" [59b]. Ritdeilan var að ýmsu leyti sérstæð og þar áttu sér senni- lega stað fyrstu og hugsanlega einu opinberu átökin á íslandi um atómkenninguna. í ádrepu sinni segir landlæknir meðal annars: Það er ómögulegt að skipta efninu í svo smáa parta, eins og homöopath- arnir þykjast gjöra, eða þynna þau, eins og þeir segja, því frumagnir (At- omer) hlutanna, sem eigi verða þynntar, eru svo langtum stærri, en homöopatharnir halda. Þetta hafa efnafræðingarnir sýnt á hinum seinni tímum, og enginn getur neitað því ... Homöopatharnir halda, að einu grani eða byggkorni og einum dropa verði skipt eigi aðeins í trillí- ón, heldur og í decillíón-staði. En þetta stríðir þvert á móti reynslu efna- fræðinganna um frumagnir hlutanna (Atomer).105 Svar Magnúsar hljóðar þannig: Partar efnanna hljóta þó ætíð að hafa í sjer efni, fylla rúm, og þess vegna vera skiptanlegir. Og undarlegt er það, að þessir hávitru (!!!) talsmenn stóru frumagnanna, dr. Hjaltalín og hans líkar, skuli þykjast færir að dæma um það, sem þeir þekkja ekki, því þessar svo nefndu frumagnir eru heilaspuni þessara vitringa, og enginn þeirra hefur nokkurn tíma sjeð þær; samt bera þeir fyrir sig vísindin, en tala þó og dæma eins og flón.106 Orðalagið minnir skemmtilega á viðhorf austurríska eðlisfræð- ingsins Ernsts Machs (1838-1916) mörgum árum síðar. Líkt og Magnús trúði Mach ekki á tilvist atóma og taldi þau hreina hug- arsmíð manna svo sem Newtons, Daltons, Maxwells og Boltz- manns.107 fróðlega grein um glímu Newtons við þetta forna vandamál: A. Janiaks: Space, Atoms and Mathematical Divisibility in Newton. Studies in History and Philosophy of Science 31, 2000, bls. 203-30. 104 Sjá t.d. bókina Öldin sem leið, Reykjavík 1955, bls. 226-27 og 232. 105 Sjá [59a|, bls. 10. Um er að ræða enskar einingar: Decillíón eða dekiljón er 10 og trillíón eða trilljón er 10 . í þessu sambandi má minna á, að fjöldi einda í einu móli er gefinn með Avogadrostölu, 6,02x10' '. 106 Sjá [59b[, bls. 38. Til gamans má geta þess, að þeir Jón og Magnús höfðu báð- ir verið nemendur Björns Gunnlaugssonar í Bessastaðaskóla. 60
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Ritmennt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritmennt
https://timarit.is/publication/859

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.