Ritmennt - 01.01.2003, Page 93

Ritmennt - 01.01.2003, Page 93
RITMENNT ÞÝDDIR REYFARAR Á ÍSLENSKUM BÓKAMARKAÐI UM MIÐJA 18. ÖLD ljóst vera að þessar bækur, fornsögurnar og slcáldsögurnar, voru prentaðar í þeirri von að hagnaður yrði af; enda stóð pentverkið mjög höllum fæti eftir þá vanrækslu sem einkennt hafði starf Halldórs biskups Brynj- ólfssonar, forvera þeirra Gísla biskups og Björns prentsmiðjustjóra. Við úttekt á dán- arbúi hans varð mönnurn ljóst að á Hólum lágu í stöflum guðsorðabækur sem prentað- ar höfðu verið í biskupstíð hans. Bækurnar virtust vera það eina sem til var upp í slculd- ir dánarbúsins, þótt ekki væri mikið upp úr þeim að hafa, enda illseljanlegar. Menn gerðu sér grein fyrir því að það að prenta einungis guðsorð væri ekki vænleg leið til að auka tekjur stólsins. Þrátt fyrir að Gísli Magnússon sé samkvæmt bréfabókum sín- um að malda í móinn vegna þessara útgáfna Björns og láti í það skína að Björn hafi ein- ungis lclínt nafni sínu undir formálann að Nokkrum margfróðum söguþáttum er greinilegt að þeir eru í byrjun sammála um að eina leiðin út úr ógöngunum sé að láta til skarar skríða um sagnaprentun og reyna með því að rétta hlut prentsmiðjunnar. Þetta sjón- armið þeirra kemur vel fram í formálanum að síðastnefndum Nokkrum margfróðum söguþáttum: Það er vitanlegt, að land vort er sem stendur, all- auðugt af andlegum bókum [...] so af þeim sömu er ekki einasta hvert hús, megandi almúga- manna, fullt, heldur og einnig liggur hér á Bisk- upsstólnum fjöldi mikill af þeim sömu bókum óseldar, sem ekki vill útganga, jafnvel þótt með þær, ekki án mikils umkostnaðar, hafi víðs veg- ar um landið, árlega útsent verið. Sýnist því bók- þrykkeríinu til stærsta skaða vera, fleiri slíkar bækur að prenta, þangað til þær fyrirliggjandi með tíðinni útganga kunna. Er þar fyrir, eftir margra ósk og beiðni, og so að prentverkið ekki með öllu iðjulaust standi, fyri sig tekið, að láta á þrykk útganga noklcrar af soddan sögum, sem þéna kynnu landsmönnum vorum til fróðleiks og leyfilegrar dægrastyttingar. Síðan segir að þeir ætli að sjá til um viðtök- ur þessarar fyrstu útgáfu en framhaldið yrði „stærri og nytsamlegri íslendingasögur" sem einnig varð raunin er Agætar forn- mannasögur komu út. Þetta útgáfustarf Björns hafði einnig sínar dökku hliðar. Öllum heimildum um Hóla- prentsmiðju frá þessum tíma ber saman um að umrætt framtak hans hafi verið glapræði og eklci tímabært því að undanskyldum þessum útgáfum var Hólaprentverkið ærið aðgerðalítið. Bæði var að prentverkið var rnjög úr sér gengið og næsta erfitt að ná í pappír og það annað er til prentunar þurfti, auk þess sem hallæri dró úr bókagerð um tíma. Við það bættist að kaupgeta manna var mjög takmörkuð á þessum árum og því erfitt að selja bækur.8 Ef tekið er mið af mannfjölda í landinu, sem var um 50 þús- und manns, verður að segjast eins og er að upplag bókanna, eða 2800 eintök af skemmtiefni, lýsi mikilli bjartsýni útgef- anda. En Björn hafði einlæga trú á þjóð sinni sem góðum og jákvæðum viðtakendum eins og endurspeglast mjög vel í orðum hans sjálfs í formálanum að skáldsögunum: 8 Jón Helgason bislcup segir um viðtölcurnar á forn- sagnaútgáfunum (á eflaust við um þetta útgáfuár þótt ekki minnist hann á útgáfu slcáldsagnanna) að þeim hafi verið tekið dauflega af alþýðu manna: „Fanst sumum það ganga goðgá næst að brúka prentverkið til að gefa slíkt út, í staðinn fyrir gott guðs orð". Sjá Meistari Hálfdan, bls. 79. Um þá stólsforráðamenn sem voru í tíð Gísla Magnússon- ar segir Jón: „[Þeir] höfðu sízt spunnið silki við það starf, sem þeim var hér í hendur selt" (bls. 95). 89
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Ritmennt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritmennt
https://timarit.is/publication/859

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.