Stígandi - 01.04.1947, Blaðsíða 72
Og þarna rétt o£an við Öliusárbrúna er bærinn Selioss, byggður
á stöðvum einhvers kotsins. Kaupfélagið, Mjólkursamlagið og el
til vill einhverjir fleiri byrjuðu á að setja sig þarna niður, fyrir til
þess að gera örfáum árum. Síðan liafa kvíarnar alltaf verið að
l'ærast út. Sláturhús, hraðfrystihús og verkstæði til viðgerða bíla
og búvéla o. fl. er á vegum kaupfélagsins. Mér var bent á hús
mikið og sagt, að það mundi verða fullsmíðað veglegasta verzl-
unarhús á landinu. Einnig það á kaupfélagið. í bæ þessum eru
breiðar götur og einlyft hús yfirgnæfandi. Þar er engin bryggja,
og þar kemur aldrei skip. Allir aðdrættir og „frádrættir" fara fram
með bílum.
Magnús þarf að taka nokkra bolta hjá vélaverkstæðinu. Þeir
eru ekki tilbúnir, svo að mér gefst gott tækifæri til smáathugana.
Það, sem ég rak einna fyrst augun í, voru hraunnibburnar, sem
alls staðar gægðust upp úr jarðveginum. Sýndu þær, að djúpt er
ekki á brunahraun, sem mun verá undir alls staðar í Flóanum
og standa víða upp úr, einkum ofan til. Þegar kom austur undir
Hraungerði, var grasrótin horlin á stórum svæðum, en grámosi
þakti hraunið.
Leið okkar lá yfir aðfærsluskurð Flóaáveitunnar, skamnrt frá
Hraungerði. Fannst mér vatnsmagnið í skurðinum sízt minna en
í miðkvísl Eyjafjarðarár. Flóaáveituna sá ég ekki, en var bent á,
hvar hún væri, niður í Flóanum. — Þar kvað og vera Síbería ís-
lenzkra stjórnarvalda. Þangað voru þeir sendir á kreppuárunum,
sem í höfuðstað landsins gerðu sig seka um atvinnuleysi, og þar
kvað eiga að rísa upp fyrsta íslenzka samyrkjubúið að rússneskri
fyrirmynd.
Bungandi lnaunborgir voru um allt, og upp á þeim vel hýstir
bæir og ræktuð tún. — Þarna niður í móðunni er stórbýlið Sand-
vík. Þar búa systkin nokkur og liafa gerzt brautryðjendur með
súgþurrkun á heyi, sem líkleg er til að liafa óútreiknanleg áhrif á
íslenzkan landbúnað. Er þáttur þeirra nokkuð kunnur af íslenzk-
um blöðum. — Og enn lengra niðri í móðunni hillir upp Stokks-
eyri, og Eyrarbakki vestar, eins og nokkrar Aladdinshallir væri
þarna á ferð í skýjum himins.
Austan við Flóann fellur Þjórsá til sjávar, lengsta og vaLns-
mesta á á íslandi. Mun hún á löngum svæðum óreið vegna dýpis
og straumþunga. Á henni er gömul járnbrú, og fylgir brúarvörður
til öryggis. Þverhnípt hæð rís fyrir austurenda brúarinnar, og þarf
að taka krappan sneiðing fast við brúna utan í hæð þessari, unz
150 STÍGANDI