Stígandi - 01.04.1947, Page 125

Stígandi - 01.04.1947, Page 125
barinn, svo að ég vissi hvorki í þennan heinr né annan. Þegar ég raknaði við, lá ég í rúminu. Eg æpti og ætlaði að hlaupast á brott, og ég barðist við foreldra mína, sem reyndu að lralda mér niðri. Ég var fárveikur og læknir 'var sóttur til mín — það sagði móðir mín mér seinna — og liann fyrirskipaði, að ég' yrði látinn liggja og hafa næði, líf mitt gæti verið í veði. Það var eins og eldur brynni innan í mér. Ég gat ekki sofið, og ísbakstrar voru hafðir við enni mér. Ég sá ofsjónir. Mér sýndust hvítir belgir hanga niður úr loftinu, og ég var sískelfdur, vegna þess að mér fannst, að þeir mundu þá og þegar springa og það, sem í þeim væri, mundi fossa yfir mig. Ég bað foreldra mína í sífellu að taka þessa belgi burtu, og skalf af hræðslu, af því að enginn virtist sjá þá nema ég. Þegar ég var orðinn úrvinda, féll ég í órótt mók, en ég æpti í svefninum, unz ég vaknaði á ný. Loks vann þó tím- inn á sjúkleika mínum og ég varð heill heilsu. — Hver atburður talaði sínu dularmáli. Og það var eins og nýjar dyr að nýjum heimum lykjust upp fyrir mér daglega. Ég minnist þess, hve hissa ég varð, er ég sá í fyrsta skipti tvo tröllstóra hesta, skjótta að lit, brokka eftir veginum og þyrla upp rykskýjum. Ég minntist þess, hvílíkur unaður gagntók mig við að horfa á marglitt blómklæði sléttnnnar utan þorpsins bylgjast í sól- blænum. Ég minntist þess, hvernig það snart einhvern dularstreng í sál minni að vaða berfættur í morgundögginni í garðinum lreima, finna kælu lrennar á nöktum fótum mér og hrista hana ljúfsvala úr limi trjánna yfir andlit mér. Ég minnist hinnar óljósu ómæliskenndar, sent það vakti í hug mér að standa á grænum, ávölum bökkunt Mississippis og horfa í leirgulan lygnstraum hennar. Mér er fyrir barnsminni köll \ illigæsanna, þrungin söknuði og' heimþrá í senn, þar sent þær bar á suðurleið í oddfylking við gráan hausthimin. Enn geyntir hjarta mitt þá angurværðarkennd, sem angan brennandi valhnetutrés bar því. Ég minnist þess, hve sú löngun gagntók mig að herma eftir spörvunum, þar sem þeir léku listir sínar í ryki þjóðvegarins. Og ég man, hve mig fýsti að vera þegn í ríki maúranna, þegar ég virti þá fyrir mér, berandi bagga sína á einhverju ævintýraferða- lagi. Ég minnist andstyggðar þeirrar, sem hafði allan hug minn á STÍGANDI 203
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Stígandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.