Tímarit Máls og menningar - 01.09.1995, Page 13
Og upplifa ...
Já, að upplifa og svo klára ég stóran hluta af fyrstu bók minni, Annaðhvort
eða, á fyrra árinu eða veturinn 1968-9.
£« hún kemur ekki útfyrr en árið 1974.
Ég vissi ekki hvert ég var að fara.
Þú varst ekki orðinn skáld?
Og er ekki enn ... nei ég vissi ekki hvert ég var að fara, var eitthvað búinn
að dútla við þetta áður en ég held að einangrunin fyrstu mánuðina í Póllandi
hafi haft mikið að segja. Ég var mállaus, kunni eitthvað í rússnesku en lærði
það fyrsta daginn að tala hana ekki í Póllandi. Ég fór þá inn á kaffihús og bað
um te á rússnesku, „tsjai“, og það kom effir hálftíma — kalt. Þannig að það
fyrsta sem ég lærði á pólsku var að segja: „Herbata“; te. Ég er auðvitað
eitthvað í Háskólanum en annars mest í því að vera til og vera ástfanginn.
Rómantísk þjóð Pólverjar, eins og skáldin þeirra.
Sem höfðu einhver áhrifá þig?
Já það er þessi vitund um tilvist smáþjóðarinnar og lífsháska hennar. Og
ekki síður íronían gagnvart sjálfum sér sem smáum. Ég gekk einhvernveg-
inn inní þetta rómantíska andrúmsloft Pólverja og alla þjáninguna sem sú
þjóð hefur gengið í gegnum. Sem kemur mjög vel fram í skáldskap þeirra,
til dæmis hjá Herbert Rózewicz. Er um leið að uppgötva sjálfan mig. Ég var
byrjaður að færast yfir í einhverskonar anarkisma en við megum ekki
gleyma því að þetta var á árum Víetnamstríðsins og þú lendir í þeirri
klemmu að velja á milli.
Annaðhvort eða ...
Ja, sko öll pólítísk viðhorf mótast af þessum tveimur stóru en þessi yndislega
íronía Pólverja opnaði margt og maður sá að heimurinn er ekki bara hvítt
og svart. Eða tvö grá svæði. Man eft ir einni pólítískri skrýtlu sem gekk í Varsjá
veturinn 68-9. Þann vetur lá við að Rússar og Kínverjar færu í stríð og þá
gekk brandari þess efnis hversu heppnir Pólverjar væru að hafa leppríki eins
og Sovétríkin milli sín og Kína. Einmitt svona hlutir opna nýjar víddir á
heimspólítík.
TMM 1995:3
11