Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1995, Qupperneq 47

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1995, Qupperneq 47
anna. í Brjáms sögu ágirnist kóngurinn kú karls, en karl þráaðist við að selja hana þangað til sendimenn konungs drápu hann og öll börnin nema Brjám sem villti um fyrir þeim með fíflslegu athæfi — eins og Hamlet Danaprins. En þar skildi milli feigs og ófeigs að Brjám lagðist ekki í hugarvíl heldur beitti bæði brögðum og harðfylgni til að koma fram fullum hefndum og eignaðist kóngsdótturina og allt ríkið. Líkur að skaplyndi var Sigurður slagbelgur sem lagði hverja gildruna annarri háskalegri fyrir kóngssyni, fulla ofmetnaðar og yfirgangs, þangað til að þeir gengu fram af björgum; varð taumlaus ágirnd kóngssona Sigurði þar til happs. Máltækið gamla „þangað vill auðurinn sem hann er fyrir“ sést ekki í ævintýrum, en í sumum þeirra er lýst á kímilegan hátt auðsöfnun forríks kóngafólksins. Þetta varð fleiri bændasonum til ffamdráttar en Sigurði slagbelg, einkanlega ættu þeir að foreldra sem lum- uðu á góðgripum. Á þeim urðu auðginntar kóngsdætur, drottningar og jafnvel kóngarnir sjálfir, svo að ekki stóð á því hjá kotastrákum að fylla orðabelgi sem aðrir höfðu gefist upp við og eignuðust þá fýrir vikið bæði kóngsdótturina og ríkið. En ekki dó Signý karlsdóttir ráðalaus þegar hún kom í hellinn, þar sem tröllskessurnar höfðu falið Hlina kóngsson og gat ekki skilið rúnirnar á rekkju Hlina, heldur beið hún eftir skessunum og lærði að ráða rúnirnar af tali þeirra svo að hún gat hrifið Hlina úr höndum þeirra. Af bændadætrum voru einbirnin ráðsnjöllust eins og Signýeðaþá hin yngstu eins og Helga, sem bjargaði eldri systrum sínum Ásu og Signýju úr höndum ljóts og leiðs tröllkarls með hugkvæmninni einni saman. Hjálpfýsi fátækra manna er víða getið; öldruð kona hýsti Sigurð nokkurn í koti sínu, svo grálúsugan vegna álaga stjúpu sinnar að hann var ekki talinn húsum hæfur. 5 Þrátt fýrir hin miklu erlendu áhrif eru til mörg séríslensk afbrigði alþjóðlegra ævintýra. Dýr og fuglar með mannsvit hafa breyst í menn í álögum og ástir manna og trölla hafa verið skýrðar svo að þessi tröll væru menn í álögum. Ævintýrið um kóngsdótturina sem neyddist til að heimsækja yfirnáttúrulega veru í undirheimum á hverri nóttu hefur verið gert að íslenskri álfasögu með því að gera kóngsdótturina að útlægri álfkonu í bústýrugervi á nafngreind- um íslenskum sveitabæ, bjargvætt hennar að ráðagóðum sauðamanni og hulinshjálmur, gandreiðarbeisli og hangið sauðarrif eru komin í stað út- lendra minna. Launaði álfkonan liðveisluna ríkulega eins og nærri má geta. Við þetta létu íslenskir sagnamenn samt ekki sitja heldur sömdu óskasög- ur þar sem þjóðtrúin og þjóðhættirnir hafa verið samtvinnuð snurðulaust í ævintýraforminu. I Munnmælasögum 17. aldar í útgáfu Bjarna Einarssonar er prentuð sagan ísland áhrærandi um kaupamanninn rammvilltan í þoku- TMM 1995:3 45
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.