Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1995, Page 78

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1995, Page 78
Næsta opna (3) er tvískipt, á vinstri síðu lýsir Putti ætlun sinni fyrir Möddumömmu: „... Ég vil fá að berjast við vondu stjúpuna, og setja steina í magann á úlfinum og leika á nornina eins og gert er í ævintýrunum. Og ég ætla,“ og nú varð Putti ógurlegur í framan, „að plata Nátttröllið út í sólina svo það verði að steini!“ En Maddamamma heldur nú ekki: „Nei hættu nú Putti,“ sagði Maddamamma. „Þú veist að okkur nægir alveg að lesa ævintýrin eða heyra þau. Raunveruleg ævintýri geta verið hættuleg." Það er nefnilega það, raunveruleg ævintýri geta verið hættuleg. En hvað eru raunveruleg ævintýri? Er ekki Skilaboðaskjóðan raunverulegt ævintýri? Hún verður að minnsta kosti nógu hættuleg áður en yfir lýkur. Á Maddamamma við að það sé einhver munur á Putta og nágrönnum hans sem eru persónur í raunverulegum ævintýrum? Þegar líður á söguna kemur í ljós að Madda- mamma getur ekki haldið þessum greinarmun sínum til streitu, mörkin milli ævintýris og raunveruleika eru ekki skýr. Kannski eru þau ævintýri raun- verulegust sem eru sögð eða lesin, og hættan við þau sú að barnið týnist í ævintýraheiminum, að skilin á milli ævintýris og veruleika raskist. Ferðin inn í ævintýrið, opnur 3-7 Hinum megin á sömu opnu er svefnherbergi Putta. Hér verða skil um miðja opnu, sem sjást best á litanotkuninni. Nú byrjar Putti ferð sína inn í ævin- týrið, sem er reyndar bæði raunverulegt og hættulegt. Herbergi Putta er annars hefðbundið svefnherbergi í barnabók. Við höfum séð svipaðar mynd- ir í fjölda annarra bóka. William Moebius hefur lýst gerð norður amerískra og evrópskra svefnherbergja í barnabókum á þennan hátt: Yfirleitt er þar rúmfoftast með höfðagafli, stundum með stólpum) og ábreiða (oft með bútasaumi), í gluggum blakta gluggatjöld og út um þá má sjá tungl og stjörnur, í herberginu er lampi, spegill, mynd á vegg, hurð, hundur eða köttur, og brúða einhversstaðar á eða við rúmið.7 Herbergi Putta (sem reyndar rennur saman við dagstofú þeirra Möddu- mömmu) svarar til þessarar lýsingar, þar er rúm með göflum, föt og stóll, gluggi og leikföng. Á stólnum hvílir opin bók eins og fýrirboði um ferðina 76 TMM 1995:3
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.