Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1995, Síða 97

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1995, Síða 97
hefur ekki tíma til að fara til Havana eða vilt endurvekja minningar um ferð þangað gerir þessi tónlist það kleift.“ En Mambó kóngunum gengur ekki allt að sólu. Nótt eina er Nestor að aka bróður sínum og ástkonu hans heim þegar bíllinn skransar á svelli og hafnar á tré. Nestor lætur þar lífið og Cesar slasast á sálinni. Það er engu líkara en hluti af honum deyi þar, því fljótlega gefst hann upp á tónlistinni, reynir síðan ýmis störf til sjós og lands, en dagar að lokum uppi sem húsvörður. Lífsnauðsynleg tengsl hafa rofnað. Afleiðingin er sú að maðurinn sem einu sinni lifði alfarið í núinu neyðist til að lifa í þátíðinni, einsamall og ástlaus. Þetta tengist einu helsta þema bókarinnar, sem er að sögn Hijuelosar sjálfs, mikilvægi ástarinnar og er það undirstrikað með titli bókarinnar. En ástar á hverju? í fyrstu skáldsögu Kazuo Ishiguro, A Pale View ofHills (1982), fellur önnur dóttir sögumanns, sem er Japani búsettur í Englandi, fyrir eigin hendi og leiðir það til uppgjörs við fortíðina og menningararf gamla landsins. Etsuko hefur flust til Bretlands, skilið við japanskan barnsföður sinn og gifst Breta. Dóttur sína af fyrra hjónabandi, Keiko, hefur hún flutt með sér. Með Bretanum á hún aðra dóttur, Niki, og var nafn hennar „málamiðlun“, móðirin vildi hafa það breskt, en faðirinn vildi að það hefði austurlenskan blæ. Keiko nær affur á móti ekki að sætta austur og vestur og móðirin brýtur heilann um hvort hún hafi valdið dauða hennar með því að flytja hana til nýs menningarheims. Þessar vangaveltur enduróma í hliðarfléttu sem Etsu- ko rifjar upp: sögu af japanskri móður og dóttur í Nagasaki eftirstríðsáranna, tímum mikils missis. Þegar þær flytja drekkir móðirin kettlingunum sem höfðu verið líf og yndi dótturinnar, og það að telpunni ásjáandi. Það liggur beint við að spyrja hvort Keiko hafi mátt þola sambærilegan missi eða hvort móðir hennar hafi óbeint drekkt henni í breskri menningu. í nýlegri bók kínversk-bandarísku skáldkonunnar Fae Myenne Ng, Bone (1993), fellur systir einnig fyrir eigin hendi, að því er virðist af menningar- legum ástæðum. Það er athyglisvert að Ona, stúlkan sem styttir sér aldur, er í miðjum systkinahópnum: „Ona var miðsystirin og fannst hún vera föst í vandræðunum miðjum.“ (139) Hún er föst á milli menningarheima og nær ekki að sætta þær andstæður sem togast á um hana. Ein systranna flytur stranda á milli til að reyna að losna úr þessari klemmu, en verður að koma til baka þegar Ona deyr. Þá segir hún um foreldra sína: „Þau vilja ekki ganga inn í okkar heim. Við þurfum að lifa áfram í þeirra heimi.“ (33) Samt viðurkenna systurnar að þær viti fulllítið um gamla landið. Faðirinn í Bone er maður tættur, ekki síst fýrir það að bandarísk menning neyðir hann til að vanvirða forfeður sína og ganga þannig á sveig við heilagan þátt í kínverskri menningu, forfeðradýrkunina. Bein föður hans týnast í bandaríska kirkju- TMM 1995:3 95
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.