Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1995, Qupperneq 127

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1995, Qupperneq 127
myndir af víkingaaldarfólki og lífi þess. Fræðslan er unnin inn í textann jafht og þétt þannig að lesanda finnst hann ekki vera að taka inn upplýsingar aðrar en þær sem eðlilegt og nauðsynlegt er að hann fái nákvæmlega á þeim stað. I frásögnum af lífinu heima á Reykja- völlum í fyrri bókinni og eftir að Korka sest að aftur á íslandi í síðari hluta seinni bókar er gefin góð mynd af linnulausum önnum sjálfsþurftarbúskaparins. Allir, háir og lágir, eru alltaf að. Allt er heimaunnið og heimagert sem hægt er, allt sem til fellur verður að nýta, og þegar best tekst til, einkum í fyrsta hluta verks- ins, fléttast fróðleikur og atburðarás vel saman. Úlfbrún kennir Korku mátt jurt- anna um leið og hún hlynnir að hinum veiku og segir henni frá rúnunum með- an Korka er að vefa, og Korka er að setja á skyrbelgi í selinu þegar Hallur nauðg- ari leitar á hana í fyrsta sinn. Ýmsum atburðum og athöfnum er vel lýst, heiðnu blóti, brúðkaupi, selsbúskap, barnsfæðingum við frumstæðar að- stæður, svo eitthvað sé nefht, fyrir utan listina í sögumiðju: rúnalesturinn. 1 dæminu hér á eftir lætur Úlfbrún Korku komast að því hvað goðin ætla henni í framtíðinni: [Úlfbrún] losaði reimina á rúnaskjóð- unni og hellti steinvölunum á setið. „Eins og þú veist leggurðu Þórshamar- inn ekki nema mikið liggi við /. . ./ Á þessari stundu finnst mér réttlætanlegt að ákalfa Þór. í miðið leggurðu þína eigin rún.“ Korka tók upp rúnina Kaun og lagði hana á milli þeirra. Síðan tók hún upp þær fjórar sem lágu næst miðju í steina- hrúgunni og sneru með táknið upp og raðaði þeim umhverfis hana. Lögnin var eins og krossmark en þetta tákn var ekki Hvíta Krists heldur Þórs. Korku varð hugsað til líkneskisins í hofinu, lokaði augunum og reyndi að beina huganum til ássins er skurðgoðið táknaði. Síðan skoðaði hún rúnirnar sem lágu fyrir ffaman hana. Vinstra megin við Kaun var rúnin Lögur og hægra megin var Ár. Fyrir ofan var Gjöf og fyrir neðan Reið. Úlfbrún hallaði sér yfir rúnirnar, áhyggjufull á svip en sagði ekkert. Korka strauk fingrum yfir táknin og fann óþægilega tiffmningu fylla brjóst sitt. Rúnirnar höfðu margs konar merkingu en hún fann að þessar boðuðu henni ekki gott. Lykilrúnin var Ár. Hún gat táknað góða uppskeru að ári en hún gat einnig þýtt að lífið tæki þá nýja stefnu, og næsta rún, Lögur, benti til sjóferðar. En hvert og hvers vegna? Hún hristi höfuð- ið. Hér voru of margar eyður. Rúnirnar Gjöf og Reið höfðu raðast saman. Það var líka undarlegt. Reið var hræðileg rún, táknaði oftast ferð til Heljar. Gjafir ör- laganornanna voru misjafhar og Korka skynjaði að í þessu tilviki hlaut gjöfin að vera einhvers konar þjáning... (Við, 78- 9) I bókarlok geta lesendur rifjað upp þessa spá og séð hvernig hún kemur fram: hinn hræðilegi dauðdagi (morðið) sem Reið boðar reynist Korku nokkurs kon- ar lífgjöf. Korka er alin upp af kristinni móður, en þegar hún tekur við menningararfi rúnanna hlýtur hún að snúa til baka og taka trú á æsina, einkum Óðin, rúna- meistarann. Samtöl Úlfbrúnar og Korku um trúmál og vangaveltur Korku sjálfr- ar um ýmsar hliðar á því efhi eru skemmtilegar og fræðandi. í rauninni er Úlfbrún ekki að gera Korku heiðna með predikunum sínum og rökum heldur kenna henni að hugsa og bregðast með- vitað við því sem gerist: þroska hana á vitrænan, jafnvel heimspekilegan hátt. Korka tekur vel við fræðslu og á í engum erfiðleikum með að hugsa sjálf út ffá sínum eigin forsendum. Þarfar eru skoðanir hennar á víkingum, ekki síst þegar höfð er í huga aðdáun nútímans á þeim: „Ég hef aldrei fyrirvarið [svo] mig fyrir að vera fædd af ærlegri írskri konu. Aldrei!" Græn augu Korku voru dökk af geðshræringu. „En ég fyrirverð mig fyrir ættstóran föður minn sem kastaði henni burt þegar hann vissi að hann hafði kveikt líf í kviði hennar. Hvaða ætterni er það sem þið stærið ykkur af, lochlan- TMM 1995:3 125
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.