Gerðir kirkjuþings - 1994, Page 97
1994
25. KIRKJUÞING
2. mál
Vísað samhljóða til fjárhagsnefndar (frsm. Helgi K. Hjálmsson).
Álit neíhdarinnar, eftirfarandi reikningar svo og fárhagsáætlun fyrir árið 1995 samþykkt
svohljóðandi:
1. Ársreikningar kristnisjóðs fyrir árið 1993 og fjárhagsáætlun ársins 1995.
Reikningar eru áritaðir af stjóm og endurskoðendum. Frágangur reikninga er góður.
Fjárhagsáætlun ársins 1995 lá einnig fyrir. Borin var saman fjárhagsáætlun fyrir árið
1994 frá fyrra ári og reikningar ársins og bar þar ekki mikið á milli. Eina vemlega
frávikið var verulega auknar tekjur af sölu jarða. Framlag ríkisins nam 18 milljónum
króna, en tekjur vegna niðurfelldra og ósetinna prestakalla vom bókaðar kr. 27.9 millj.
Mótmælir nefiidin harðlega að ríkið hafi ekki að fullu staðið skil á lögbundnu framlagi
vegna niðurlagðra og ósetinna prestakalla.
Farið var yfir úthlutanir kristnisjóðs og gerir nefndin ekki athugasemdir við þær.
Fjárhagsnefnd leggur til að reikningar kristnisjóðs 1993 og fjárhagsáætlun 1995 verði
samþykkt.
2. Ársreikningar Jöfnunarsjóðs sókna fyrir árið 1993.
Reikningamir em áritaðir af stjóm og endurskoðendum. Frágangur reikninga er góður.
Nefhdin lýsir ánægju sinni um skrá yfir úthlutanir sjóðsins frá 1988, þar sem tölur em
uppfærðar til verðlags ársins 1993. Ósk kom fram um að fram kæmi á framangreindri
úthlutunarskrá samtala upphæða til hvers prófastsdæmis. Vakin var athygli á að
úthlutun til minningarkapellu Jóns Steingrímssonar, Kirkjubæjarklaustri, hefði fallið
niður þetta árið. Þessi athugasemd kom frá sr. Siguijóni Einarssyni, prófasti.
Nefiidin bendir á að farið verði varlega í að úthluta fé til kirkna, sem ekki hafa
byggingarsögulegt gildi og sóknir em auðar eða nær eyddar.
Fjárhagsnefiid beinir því til kirkjuráðs að nú verði aðskilinn fortíðarvandi kirkna frá
reglubundinni úthlutun til nýrra kirkna, með hliðsjón af nýjum reglum um kirkjur og
kirkjubyggingar. Gerð verði sérstök úttekt á umfangi þessa vanda og leitað leiða til
þess að leysa hann í eitt skipti fyrir öll.
Fjárhagsnefiid leggur til að ársreikningur Jöfnunarsjóðs sókna fyrir árið 1993 verði
samþykktur.
3. Reikningar eftirfarandi stofnana voru Iagðir fram og skoðaðir:
A) Kirkjubyggingasjóður, ársreikningur 1993.
Reikningurinn er gerður af Ríkisendurskoðun. Staðfestur og áritaður af stjóm og
endurskoðendum. Á árinu 1993 nam hagnaður af rekstri Kirkjubyggingasjóðs skv.
rekstrarreikningi 10,2 milljónum króna. Fjármunatekjur hækkuðu um 2 millj. kr. eða
um 22%. Framlag ríkissjóðs var 2 milljónir króna á árinu 1993, en ekkert árið 1992.
Eigið fé samkvæmt efhahagsreikningi nam 72,6 milljónum króna sem er 12,2 milljóna
króna aukning frá árinu á undan. Veitt lán á árinu 1993 vom 10,5 milljónir króna.
B) Kirkjugarðasjóður, ársreikningur 1993.
92