Gerðir kirkjuþings - 1994, Page 108
1994
25, KIRKJUÞING
3. mál
Nánari ákvæði um sérþjónustupresta skal setja í almennar starfsreglur sbr. 63. gr.
lagaþessara.
9. Djáknar
44. gr.
Djáknar eru ráðnir af sóknamefhd í samráði við sóknarprest til þess að gegna
sérstaklega tilgreindum störfum á sviði líknar- og fræðslumála innan safriaðar.
Til að hljóta ráðningu og vígslu sem djákni þarf hlutaðeigandi að hafa lokið
viðeigandi prófi frá guðfræðideild Háskóla íslands og hlotið tilskrilda starfsþjálfiin á vegum
djáknanefiidar íslensku þjóðkirkjunnar, er kirkjuráð skipar. Hafi umsækjandi um djáknastarf
lokið prófi frá erlendum djáknaskóla skal biskup íslands leita umsagnar guðfræðideildar
Háskóla íslands.
Um þjónustu djákna fer nánar eflir ákvæðum í starfsreglum, sbr. 63. gr.
10. Sóknir og prestaköll
a. Almennt
45. gr.
Sóknin er grunneining íslensku þjóðkirkjunnar. Ein eða fleiri sóknir mynda
prestakall, er sami prestur eða sömu prestar þjóna.
46. gr.
Kirkjusókn er félag þess fólks innan íslensku þjóðkirkjunnar, sem býr innan
sóknarmarica.
Kirkjusókn er sjálfstæð ijárhagsleg og félagsleg eining, en tengist öðrum sóknum
innan sama prestakalls, ef um það er að ræða, með samstarfi, sem héraðsfundur kann að
mæla fyrir um, eða einstakar sóknamefiidir stofiia til. Þá tengjast kirkjusóknir öðrum
sóknum innan prófastsdæmis með sameiginlegum héraðsfundi.
Sóknarmenn eiga rétt á kirkjulegri þjónustu í sókn sinni og bera sameiginlegar
skyldur eftir því sem nánar er kveðið á um í lögum eða með lögmæltum ákvörðunum.
b. Sóknarmörk og breytingar á þeim
47. gr.
Aðalsafiiaðarfundur eða aðalsafnaðarfundir, ef mál varðar fleiri sóknir en eina, gera
tillögur til héraðsfimda um skiptingu kirkjusóknar, sameiningu sókna og um sóknarmörk
svo og um niðurlagningu kirkju eða tilfærslu.
48. gr.
Nú er kirkjusókn skipt og teldn upp ný sókn eða sóknarmörk færð til og skal þá
miða fjárskipti sóknanna við hlutfallslegan fjölda þeirra sóknarmanna, sem breytingin tekur
til. Ef aðilja greinir á um ijárskiptin, geta viðkomandi sóknamefiidir krafist þess að
kirkjumálaráðherra skipi tvo menn í nefiid með prófasti er útkljái ágreiningsefhið til
fullnaðar. Prófastur er formaður nefhdarinnar. Sé prófastur sóknarprestur í kirkjusókn, sem
skipta á, er honum rétt að víkja sæti og skal biskup skipa annan í hans stað. Nefhdin veitir
103