Gerðir kirkjuþings - 1994, Page 131
1994
25. KIRKJUÞING
3. mál
10. Djáknar
44. gr.
Þjónandi djákni þjóðkirkjunnar telst vera hver sá sem á grundvelli
köllunar og vígslu gegnir fastri djáknaþjónustu í þjóðkirkjunni.
Djáknar eru ráðnir af sókname&d í samráði við sóknarprest til þess að gegna
sérstaklega tilgreindum störfum á sviði líknar- og fraíðslumála innan safiiaðar.
Heimilt er í samráði við viðkomandi sóknarnefnd og sóknarprest og /eða
sjúkrahússprest að ráða djákna tU starfa á sjúkrastofnun
Til að hljóta ráðningu og vígslu sem djákni þarf hlutaðeigandi að hafa lokið
viðeigandi prófi frá guðfræðideild Háskóla íslands og hlotið tilskilda starfsþjálfim á vegum
djáknanefiidar þjóðkirkjunnar, er kirkjuráð skipar. Hafi umsækjandi um djáknastarf lokið
prófi frá erlendum djáknaskóla skal biskup Islands leita umsagnar guðfræðideildar Háskóla
íslands.
Um þjónustu djákna fer nánar eftir ákvæðum í starfsreglum, sbr. 63. gr.
11. Sóknir og prestaköU
a. Almennt
45. gr.
Sóknin er grunneining þjóðkirkjunnar og starfsvettvangur hennar á
hverjum stað. Ein eða fleiri sóknir mynda prestakall.
46. gr.
Kirkjusókn er félag þess fólks innan þjóðkirkjunnar, sem býr innan sóknarmarka.
Kirkjusókn er sjálfstæð ijárhagsleg og félagsleg eining, en tengist öðrum sóknum
innan sama prestakalls, ef um það er að ræða, með samstarfi, sem héraðsfimdur kann að
mæla fyrir um, eða einstakar sóknamefiidir stofiia til. Þá tengjast ldrkjusóknir öðrum
sóknum innan prófastsdæmis með sameiginlegum héraðsfimdi.
Sóknarmenn eru aUir þeir, sem lögheimUi eiga í sókn, miðað við 1.
desember næst Iiðinn, hafa hlotið skírn og eru skráðir í þjóðkirkjuna. Urn
skráningu óskírðra í þjóðkirkjunni fer að öðru leyti eftir ákvörðun laga um
trúfélög, nr. 18/1975.
Sóknarmenn eiga rétt á kirkjulegri þjónustu í sókn sinni og bera sameiginlegar
skyldur eftir því sem nánar er kveðið á um í lögum eða með lögmæltum ákvörðunum.
b. Sóknarmörk og breytingar á þeim
47. gr.
Aðalsafhaðarfundur eða aðalsafhaðarfundir, ef mál varðar fleiri sóknir en eina, gera
tillögur til héraðsfiinda um skiptingu kirkjusóknar, sameiningu sókna og um sóknarmörk
svo og um niðurlagningu kirkju eða tilfærslu.
126