Gerðir kirkjuþings - 1994, Page 184
1994
25. KIRKJUÞING
8, mál
leggur áherslu á að sá tími sem vinnan krefur komi ekki niður á þeim tíma sem
fjölskyldan hefur til samvista.
Hér má nefha möguleika ungra foreldra, bæði feðra og mæðra, á sveigjanlegum
vinnutíma, sem gefi rými eðlilegum fjarvistum vegna umönnunar bama. Lengd og
skipulag fæðingarorlofs ber einnig að miða við hag fjölskyldunnar og veita skal jafnt
feðrum sem mæðrum tækifæri til aukinna samvista við böm sín.
3.3 HÚSNÆÐISMÁL
Samfélagi, sem hefiir gildi fjölskyldunnar að leiðarljósi og fjölskylduvemd. að
markmiði, ber að auðvelda ungum íjölskyldum að koma sér upp heimili. Eigið heimili er
einn gmndvallarþáttur heilbrigðs fjölskyldulífs og því verður að koma til móts við ungt
fólk, sem er að stofna heimili í fyrsta sinn.
þar er ekki síst mikilvægt að raunhæf ráðgjöf sé fyrir hendi, bæði fjárhagsráðgjöf og
fjölskylduráðgjöf. Æskilegt er að á efri stigum skólakerfisins fari ffam fjármálafræðsla
sem geri ungu fólki kleift að meta getu sína til að takast á herðar
fjárhagsskuldbindingar og stuðla þannig að skynsamlegri áætlanagerð.
3.4 FÉLAGS- OG HEILBRIGÐISMÁL
Siðferðilegur grundvöllur velferðarsamfélagsins er að jafht einstaklingar sem samfélag
beri ábyrgð á hag þeirra sem samfélagið byggja. Samhjálp samfélagsins, svo sem í formi
almannatrygginga, er hveijum þegn nauðsynlegt öryggisnet, en rænir hann ekki ábyrgð
á eigin hag og annarra. Jafnvægi verður að ríkja á milli réttinda og skyldna þegna
gagnvart þjóðfélagi og þjóðfélags gagnvart þegnum.
Félags- og heilbrigðiskerfi hlýtur að þjóna mcmnvemdarmarkmiðum. í því felst að jafiia
kjör og aðstæður fólks og tryggja að einstaklingar og ljölskyldur fái svigrúm til að
móta sér lífsstefnu og framfýlgja henni. Þar er ekki síst mikilvægt að öflug
fjölskylduráðgjöf sé hluti stuðningskerfis samfélagsins.
Málefiii aldraðra eru sérstakt umhugsunarefiii þegar litið er til félags- og
heilbrigðismála. Þar er eðlilegt að leggja áherslu á að fólk eigi val um ævikvöld. Þau,
sem þess óska, eiga að hafa möguleika á að vera sem lengst við sínar aðstæður, á eigin
heimili. Skilyrði þessa er að hlúð sé að fólki heima með eflingu heimilisaðstoðar og
heimahjúkrunar. Sem fýrr miðar mannvemd samfélagsins að því að það veiti
fjölskyldum stuðning þegar þörf er á, og þá einnig hjúkrunarrými þegar fólk getur ekki
lengurbúið heima.
179