Gerðir kirkjuþings - 1994, Síða 185
1994
25. KJRKJUÞING
8, mál
3.5 RÉTTARKERFl
Nauðsynlegt er hveijum einstaklingi og hverri fjölskyldu að geta treyst því að búa í
réttarríki, þar sem allir geta leitað réttar síns í samræmi við lög og eru jafiiir fyrir þeim,
sem kveða upp dóma. Þvi getur fylgt mikið álag að leita réttar síns og enn frekar, ef
breyskleiki hefúr leitt til athafna, sem svara verður fyrir í dómssal, og leggst það oft
þungt á fjölskyldu þess sem dæmdur er. Nauðsynlegt er að fjölskylda í þessari stöðu fái
stuðning og ráðgjöf. Sömuleiðis þarf fólk að geta leitað upplýsinga um réttarstöðu sína,
óháð ijárhag og þjóðfélagsstöðu.
4. KIRKJAN - SÍVrRKT SAFNAÐARSTARF
Sívirkt safnaðarstarf í þágu fjölskyldunnar byggir á þeirri trú, von og kœrleika, sem
er grundvöllur kristinnar kirkju og markmið.
Kirkjan er í eðli sínu samfélag einstaklinga og hefur að megin markmiði að miðla
kærleika Guðs til allra heimsins bama. Hún býr að þessum auði sem hún vill ekki liggja
á heldur er komin til þess að veita öllum bömum Guðs hlutdeild í honum. I starfi sínu
leitast hún við að glæða og treysta þau kærleiksbönd sem tengja saman einstaklinga,
ekki síst hjón og fjölskylduna. Eins og Guð elskar okkur þannig ber okkur að elska
aðra. Sú elska knýr mig til boðunar, og þjónustu, en líka til eigin uppbyggingar og
endumýjunar. Aftur og aftur leitum við til þessarar uppsprettu kærleikans,
fyrirgefningarinnar, tilboðs um nýtt upphaf hvem dag.
Hlutverk kirkju Krists er í senn að vera afl í gjörvallri sköpuninni er ryður veginn fyrir
kærleika hans og vera sjálf samfélag í kærleika. Kirkjan hefúr sjálf mótað sitt starf og
fetað sig um farveg boðunar, helgihalds, umönnunar, leiðsagnar, ffæðslu, sátta og
sálgæslu. Hún vill vera trú bæði höfúndi sínum og hlutverki og leitast við að vera
trúverðug með því að mæta einstaklingnum þar sem hann er. Með aðstoð og aðferðum
ýmissa fræðigreina vill kirkjan opna enn ffekar farveginn fyrir boðskap sinn í þessum
samfélagsfirrta heimi og styrkja fjölskyldulífið til muna.
4.1 Gagnkvæm ábyrgð
Fjölskyldustefha kirkjunnar snýr að hveijum einstaklingi safnaðarins, óháð
fjölskyldustærð eða fjölskyldugerð. Kirkjan vill mæta fólki í þeim aðstæðum sem það
býr við. Um leið vill kirkjan hvetja til ábyrgðar. í samræmi við sýn kristinnar trúar á
fjölskyldunni hefúr hér verið lögð áhersla á siðferðilega skuldbindingu eða sáttmála
180