Gerðir kirkjuþings - 1994, Page 223
1994
25. KIRKJIIÞING
13. mál
svo og viðhald, sem ekki greiðist af presti. Vígslubiskup sendir tillögur
prófasta til stjómar prestssetrasjóðs, ásamt tillögum sínum og
athugasemdum um röð framkvæmda.
Vígslubiskupar geta gert tillögur til stjómar prestssetrasjóðs um
hvaðeina sem varðar prestssetrin, umbúnað þeirra, notkun og ásýnd. Þeir
geta enn fremur gert tillögur í þessu sambandi sem varða menningarlega
sérstöðu prestsseturs, svo sem vegna sögu þess, fomminja, náttúrufegurðar,
náttúmminja og annarra slíkra þátta.
Um stjórn prestssetrasjóðs
14. gr.
Stjóm prestssetrasjóðs fer með yfirstjóm prestssetra.
Stjómin stýrir prestssetrasjóði og ákveður ráðstöfim inneigna á
fymingarsjóðum prestssetra, samkvæmt 2. gr. Stjómin ákveður hvemig
rekstri sjóðsins er hagað. Sérstakur framkvæmdastjóri fer með daglega
stjóm sjóðsins.
Stjóm prestssetrasjóðs hefur hlutverk landsdrottins gagnvart
prestum á prestssetursjörðum samkvæmt ábúðarlögum og öðmm lögum og
hlutverk leigusala gagnvart presti í prestsbústað samkvæmt húsaleigulögum,
með þeim afbrigðum sem kunna að leiða af lögum um prestssetur og reglum
þessum, svo og sérstöðu prestssetra að öðm leyti.
Um gæslu hagsmuna og fyrirsvar
15. gr.
Stjóm prestssetrasjóðs hefur almennt fyrirsvar vegna prestssetra út á
við svo sem gagnvart stjómvöldum og Alþingi, og í dómsmálum þeirra
vegna, og gætir almennra og sérstakra hagsmuna prestssetra í samráði við
hlutaðeigandi prest, prófast og vígslubiskup, eins og við á.
Stjóm prestssetrasjóðs hefiir gætur á lagasetningu, lagabreytingum
eða setningu eða breytingu stjómvaldsfýrirmæla á sviði kirkjumála.
Sjóðsstjóm skal hafa sérstakar gætur á lögum um prestaköll og
prófastsdæmi, þar sem mælt er fyrir um lögboðin prestssetur. Hún gætir
einnig sérstaklega að fyrirætlunum um ný prestsembætti önnur en
sóknarprestsembætti, einkum utan Reykjavíkur, vegna réttar slíks prests á
prestssetri sámkvæmt lögum. Þá hefur stjómin gætur á breytingum á öðrum
218