Gerðir kirkjuþings - 1994, Page 243
1994
25. KIRKJUÞING
13. mál
með þeirri breyttu skipan í málefnum prestssetra, og að teknu tilliti til þess,
að prestsetur eru kirkjumál sem stofiiun prestssetrasjóðs felur í sér, verður
að telja að biskupi nýtist eftirlit prófasta samkvæmt þeim hugmyndum sem
hér um ræðir í þágu eigin eftirlits á prestssetrum, og þarf því ekki að verða
um tvíverknað að ræða.
í reglum þessum er gengið út frá því að prestar geri hver um sig
árlega skýrslu um viðhaldsframkvæmdir á prestssetri, ef einhveijar eru og
að prófastar innheimti þær síðan. Prófastar hafa að öðru leyti eftirlit með
ástandi prestssetra í samráði við byggingaeftirlitsmann prestssetrasjóðs eða
byggingafróða menn, að fengnu samþykki eða eftir ákvörðun stjómar
prestssetrasjóðs. Þama er gefinn möguleiki á því að færa eftirlitsþátt meira
heim í hérað, ef svo vill verkast. Þeim málum hefur þó ekki verið skipað til
frambúðar og a.m.k. enn um sinn verður hafður sá háttur á að sérstakur
byggingaeftirlitsmaður verður starfandi á vegum sjóðsins.
Samkvæmt þessu ákvæði ber prófasti að gæta þess að prestssetur sé
setið þannig að sómi sé að og að öll umhirða þess og umgengni um það sé
viðunandi. Prófastar skulu kalla eftir sérstakri skýrslu prests um
viðhaldsframkvæmdir á prestssetrinu. Þá skulu prófastar að öðm leyti hafa
eftirlit með ástandi prestssetra í samráði við byggingaeftirlitsmann
prestssetrasjóðs eða annan sérfróðan mann.
Prófastar skulu einnig kanna hvort þörf er á endurskoðun
fasteignamats, eða tilefni til breytinga á því að öðru leyti. Getur þar ýmist
verið um að ræða að prófastur telji rétt að lækka mat vegna breyttra
aðstæðna, eða hækka það eða hitt að bæta nýjum matshlutum inn, eða fella
aðra brott. Þá getur verið ástæða til að huga að skráningum í fasteignamat
á einstökum matshlutum.
Þá kannar prófastur hvort nægilegar tryggingar séu fýrir hendi og
iðgjöld af þeim í skilum, svo og fasteignagjöld einnig.
Prófastar gæta þess að prestur sjái til þess að réttindi sem fylgja
prestssetri séu til staðar og ekki hætta á að þau tapist. T. d. verður að gæta
þess að ffamleiðsluréttur prestssetursjarða tapist ekki.
Ekki er reiknað með að verkefni prófasta samkvæmt þessu ákvæði
verði verulega íþyngjandi, þótt ógerlegt sé að spá um það, a.m.k. á það ekki
að þurfa að verða ef kerfi þetta reynist vel og festa er komin á það. Svo
sem fram kemur í 11. gr. eiga prestar að fylla út ákveðið eyðublað sem þeir
fá hjá sjóðsstjóm, þannig að mestöll vinna við skriftir dreifist á hendur
margra. Hlutverk prófasts við eftirlit er fýrst og fremst að skoða prestssetur
og staðreyna að hlutir þar séu í lagi, og upplýsingar prests réttar. Prófasti
238