Gerðir kirkjuþings - 1994, Síða 273
1994
25. KIRKJUÞING
14, mál
TILL AGA
til þingsályktunar um kaup og sölu prestssetra
Flutt af kirkjuráði
Frsm. Guðmundur Þór Guðmundsson
Kirkjuþing 1994 heimilar sölu á nokkrum prestssetrum og kaup á öðrum í þeirra stað
sbr. 4. gr. 1. um prestssetur nr. 137/1993.
Prestssetrin eru eftirtalin:
1. Bólstaður í Bólstaðarhlíðarprestakalli, Húnavatnsprófastsdæmi
2. Túngata 6, Suðureyri í Staðarprestakalli, ísafjarðarprófastsdæmi
3. Bakkatún, Bíldudal í Bíldudalsprestakalli, Barðastrandarprófastsdæmi
4. Túngata 28, Tálknafirði, Tálknafjarðarprestakalli, Barðastrandarprófastsdæmi
5. Hlíðarvegur 71, Ólafsfirði, Ólafsíjarðarprestakalli, Eyjafjarðarprófastsdæmi
6. Hólavegur 17, Dalvík, Dalvíkurprestakalli, Eyjaíjarðarprófastsdæmi
7. Spildur úr landi Mosfells, Mosfellsbæ, Mosfellsprestakalli,
Kjalamesprófastsdæmi.
Ennfremur veitir kirkjuþing heimild til kaupa á húsum á sömu stöðum í stað
ofangreindra prestssetra. Þó verður ekki keypt hús í stað Bólstaðar.
Þá heimilar kirkjuþing einnig kaup á prestsbústað á Hellissandi.
GREINARGERÐ.
Stjóm prestssetrasjóðs hefur ákveðið að leita eftir heimild kirkjuþings til sölu á
nokkmm prestssetrum landsins og til kaupa á öðmm húsum í þeirra stað sbr. 4. gr. 1.
um prestssetur nr. 137/1993.
Prestssetrin sem óskað er eftir að kirkjuþing heimili sölu á em eftirfarandi:
1. Bólstaður í Bólstaðarhlíðarprestakalli, Húnavatnsprófastsdæmi
2. Túngata 6, Suðureyri í Staðarprestakalli, ísaljarðarprófastsdæmi
3. Bakkatún, Bíldudal í Bíldudalsprestakalli, Barðastrandarprófastsdæmi
4. Túngata 28, Tálknafirði, Tálknaíjarðarprestakalli, Barðastrandarprófastsdæmi
268