Gerðir kirkjuþings - 1994, Page 275
1994
25. KIRKJUÞING
14, mál
Bakkatún á BQdudal.
Prestsbústaðurinn Bakkatún á Bíldudal er fin, á einni hæð auk stórrar
sérbyggðrar byggingar sem er bifreiðageymsla, geymslur o. fL Húsið er að ýmsu leyti
glæsilega teiknað en rekstrarkostnaður er með því hæsta sem þekkist á prestssetri,
kynding og rafinagn geta kostað um 25.000, kr. á mánuði að vetrarlagi. Þá er
fyrirkomulag nokkrum annmörkum háð með tilliti til þess að það á að þjóna sem
prestssetur. Þykir því rétt að athuga hvort finna megi hentugra hús á Bíldudal er kosti
minna að reka og þar sem fyrirkomulag er hentugra. Stjóm prestssetrasjóðs fer þess
því á leit að fá heimild til að selja húsið.
Túngata 28, Tálknafirði.
Prestsbústaðurinn er timburhús, 158 fin að stærð, ein hæð með rafmagnshituðu
vatnshitakerfi. Biffeiðageymsla er sérbyggð. Skrifstofa er ekki sérgreind ffá íbúð.
Ekki er langt síðan hús þetta var keypt. Það er hins vegar ljóst að ef það á að
þjóna tilgangi sínum sem boðlegt prestssetur verður að ráðast í ýmsar kostnaðarsamar
breytingar. Fyrirkomulag er gallað að ýmsu leyti, t.d. er biffeiðageymsla allt of stór.
Þykir því mega ffeista þess að finna annað hús á Tálknafirði er hentað geti betur sem
prestssetur. Slík lausn gæti jafhvel verið ódýrari en endurbætur á núverandi
prestbústað. Sóknarprestur er samþykkur þessum áformum fyrir sitt leyti. Stjóm
prestssetrasjóðs óskar eftir heimild til að selja húseign þessa.
Hlíðarvegur 71, Ólafsfirði.
Húsið er byggt árið 1964 og er steinsteypt, 213 frn að stærð á tveimur hæðum.
Það er kynt með hitaveitu. Biffeiðageymsla er sambyggð húsinu og er skrifstofa
með sérinngangi.
Prestsbústaður þessi er staðsettur í fyallshlíð. Fyrir nokkmm ámm féll aurskriða
á húsið og fór m. a. í gegnum bílskúrinn. Mikil mildi var að ekki fór verr.
Prestshjónin hafa haft mikinn hug á því að fá skipt um húsnæði m.a. af þessum
sökum og nú hefur komið fram sú hugmynd að fá keyptan gamla prestsbústaðinn, sem
er eign sveitarfélagsins og er mjög vel staðsettur í miðjum bænum. Auk þess þarfiiast
prestssetrið nokkurra endurbóta við ef vel á að vera. Telja verður brýna þörf á að
skipta um prestssetur og óskar því stjóm prestssetrasjóðs eftir heimild til sölu.
Hólavegur 17, Dalvík.
Húsið er byggt árið 1966 og er 227 fin , kjallari og hæð. Það er steinsteypt og
kynt með hitaveitu. Skrifstofa er tengd forstofii. Húsið þarfnast gagngerra endurbóta
og athuga þarf allt fyrirkomulag og jafiivel að breyta því vemlega. Endurbætur þessar
em áætlaðar mjög kostnaðarsamar svo hagkvæmt gæti verið að skipta um húsnæði og
fá annað sem myndi henta betur sem prestsbústaður. Verður samráð haft við
sóknarprest ef kirkjuþing heimilar þessa ráðstöfun.
270