Gerðir kirkjuþings - 1994, Síða 289
1994
25. KIRKJUÞING
18, mál
TILL AGA
til þingsályktunar um handleiðslu og ráðgjöf fyrir presta
Flm. og frsm. sr. Karl Sigurbjömsson
Kirkjuþing fagnar því að sú handleiðsla og ráðgjöf fyrir presta sem ákveðin var á
kirkjuþingi 1991 skuli nú vera komin til framkvæmda. í ljósi hinnar góðu reynslu af
handleiðslunni ályktar kirkjuþing að stefiit verði að því að allir prestar þjóðkirkjunnar
njóti samningsbundinnar handleiðslu í starfi í eitt og hálft ár hið minnsta á fyrstu fimm
árum í þjónustunni.
Framkvæmdin og hin faglega þjónusta sé á hendi Fjölskylduþjónustu kirkjunnar.
Kirkjuráð semji við Prestafélag Islands og við héraðssjóði um þátttöku í kostnaði.
Greinargerð handleiðslunefiidar til kirkjuþings 1994.
í kjölfar samþykktar á kirkjuþingi 1991 fól kirkjuráð Fjölskylduþjónustu kirkjunnar að
annast handleiðslu fyrir presta. Til frekari undirbúnings þess máls var skipuð
handleiðslunefnd sem í eiga sæti sr. Bragi Skúlason, prestur Ríkisspítalanna, tilnefhdur af
P.I. sr. Þorvaldur Karl Helgason, forstöðumaður, tilnefndur afFÞK, og sr. Karl
Sigurbjömsson, sóknarprestur, tilnefndur af biskupi Islands, en hann er jafhframt
formaður nefiidarinnar. Sr. Karl kom í stað sr. Jóns D. Hróbjartssonar, prófasts, sem var
formaður fyrsta árið.
Málið var kynnt öllum prestum landsins og efnt til sérstaks fundar í safhaðarheimili
Askirkju 2. september 1993. í framhaldi af honum vom auglýstir handleiðsluhópar og er
skemmst frá því að segja að í nóvember 1993 fóm 6 hópar af stað með samtals 21 prest
úr 7 prófastsdæmum. Tveir hópar koma saman mánaðarlega og fiórir hálfsmánaðarlega:
1. Einn hópur presta utan af landi (3 prestar), mánaðarlega, 5 klst. í senn.
2. Einn hópur í Stykkishólmi (3 prestar), mánaðarlega, 5 klst. í senn.
3. Einn hópur með 3 prestum, hálfsmánaðarlega, 3 klst.
4. Þrír hópar með 4 prestum hver, hálfsmánaðarlega, 3 klst.
Handleiðslu allra hópanna annast sr. Þorvaldur Karl Helgason og eins og sést að ofan fer
hann einu sinni í mánuði í Stykkishólm, en hinir hópamir koma saman á skrifstofu FÞK að
Laugavegi 13.
Fram að þessu hafa prestar engan kostnað borið fyrir utan ferðakostnað.
Handleiðslunefndin fær greidd nefndarlaun úr kristnisjóði. En laun til handa handleiðara
og til Kristínar Gústavsdóttur frá Gautaborg, sem er yfirhandleiðari þessa verkefhis, hefur
FÞK alfarið tekið á sig. Kirkjuráð veitti kr. 500 þúsund til þessa verkefnis á þessu ári.
284