Gerðir kirkjuþings - 1994, Page 297
1994
25. KIRKJUÞING
22. mál
Skýrsla kirkjueignarnefndar
Flm. og frsm. sr. Þórhallur Höskuldsson
I. Störf nefndarinnar
Kirkjueignanefnd vísar til skýrslu sinnar til kirkjuþings 1992 og 1993 og
ítarlegrar áfangaskýrslu til prestastefnu (birt sem fylgirit í gjörðum kirkjuþings 1993).
Frá síðasta kirkjuþingi hefur nefndin átt 6 fundi með viðræðunefnd ríkisins, og
miðar all vel, eins og fram kemur síðar í þessari skýrslu. Einnig hefiir nefndin haldið
nokkra fundi sjálf og átt fundi með öðrum vegna einstakra mála.
Nefndin átti t.d. fundi:
1. - með Jóni Höskuldssyni, í landbúnaðarráðuneytinu, þar sem farið var yfir
lög og lagaffamkvæmd við sölu opinberra jarða og skrár yfir seldar jarðir og
jarðahluta frá 1985.
2. - með Guðmundi Þór Guðmundssyni vegna starfsreglna stjómar
prestssetrasjóðs og afiiotasamnings og byggingarbréfs prestssetra. Þá hafði
nefndin afskipti af málum er snerta Breiðabólstað í Vesturhópi, er var að
lögum prestssetur til 1990, og ritaði dóms- og kirkjumálaráðherra bréf af því
tilefhi 27. desember 1993.
3. - með „synodalnefnd um vörslu kirkjueigna”, og var síðar kynnt meðfylgjandi
skýrsla synodalnefndar til prestastefiiu 1993 (fylgiskjal 1).
4. - með fulltrúum skipulagsnefndar, þar sem farið var yfir, og skipst á
skoðunum, um ffumvarpið um „stöðu, stjóm og starfshætti íslensku
þjóðkirkjunnar”.
Gömul og ný álitamál varðandi meðferð, vörslu og sölu kirkjujarða hafa
vissulega tekið sinn tíma á fundum viðræðunefndanna. Og nokkur þrýstingur hefur
verið af hálfu landbúnaðarráðuneytisins um sölu kirkjujarða, m.a. í sambandi við
kauparétt ábúenda, sbr. ábúðarlög, og nýju stjómsýslulögin. Hefur nefndin óskað eftir
því við kirkjumálaráðherra að hann hlutist til um lausn á því máli.
Þá hefiir nefndin leitað eftir upplýsingum hjá landbúnaðarráðuneytinu um þau
hlunnindi, sem haldið hefur verið eftir við sölu kirkjujarða og eftir upplýsingum um seld
prestssetur á grundvelli laganna um íbúðarhúsnæði í eigu ríkisins frá 1968. Þessar
upplýsingar hafa ekki enn borist en nefndin hefur fengið í hendur (ffá Jóni Thors) lista
úr ijárlögum yfir heimildir til sölu prestssetra eftir 1970. Sá listi segir þó takmarkaða
292