Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2013, Side 132
sé svo að finna rætur kapítalismans.38 Mótmælendur eigi þannig óbeinan
þátt í mótun nútímans. Nútíma heimsmynd sé afrek upplýsingarinnar, sem
mótaðist í átökum við forna heimsmynd miðalda.39
Innan þýsku hughyggjunnar allt frá Leibniz til Hegels gæti þó áhrifa
lúthersdóms, en í enskri heimspekihefð eða raunhyggju gefi kalvínismi
tóninn. Listir hafi meira vægi innan lúthersdóms en samt ekki með þeim
hætti að þar sé að finna skilgreinda leið til að nálgast guðdóminn með.40
Afstaða Troeltsch er sú að siðbótin hafi auðveldað framgang nútímans, en
sé ekki uppruni hans. Frumleiki siðbótarinnar sé á sviði trúarinnar, þar sem
áherslan hvíli á trú og trúarupplifun einstaklingsins með vísun í mikilvægi
náðarinnar. Lúther losi trúna úr ánauð sakramentalisma og kirkjuvalds og
einstaklingurinn tileinki sér náðina í persónulegri trú. Náðarboðskapurinn
virkjar þannig sjálfstæði og ábyrgð einstaklingsins. Siðbótin tekur einstak-
linginn af sviði dogmatískrar ánauðar og færir hann yfir á svið persónu-
legrar trúar og samviskufrelsis. Hreyfmg mótmælenda verði þar með að
trúarbrögðum guðstúlkenda. Þeir séu opnir fyrir húmanískum áhrifum,
gagnrýnni hugsun og nútímavísindum.
Á grundvelli þessa aðgreinir Troeltsch mótmælendastefnuna í eldri og
nýrri. Sú eldri tilheyrir miðöldum, en sú nýrri nútímanum.41 Samkvæmt
Troeltsch er það fyrst með nýrri stefnu mótmælenda sem trúarhugsun
miðalda er létt af fólki. Þar sé skrefið tekið til fulls inn í nútímann og
trúin í krafti sögurýninnar losuð úr ánauð biblíuhyggju rétttrúnaðar. I
þessari nýju stefnu sé áherslan lögð á einstaklinginn og samfélag manna
grundvallað á sameiginlegri trú sem aðlöguð er samtímanum. I rannsóknum
sínum samsinnir Weber þessu en tekur annan pól í hæðina og afmarkar
efnið við þátt kirkjudeildar mótmælenda í tilurð kapítalismans og athugar
samfélagsleg áhrif ákveðinna guðfræðikenninga innan hennar.
5. Max Weber, auðhyggjan og vinnusiðferði mótmælenda
í riti sínu Siðferði mótmælenda og auðhyggjan42 greinir Max Weber orsakir,
virkni og birtingarmynd kapítalismans innan vestrænnar menningar. Þar
skoðar hann hvernig guðfræðikenningar móta jafnt sjálfsmynd og félags-
38 Ernst Troeltsch, „Die Bedeutung des Protestantismus ftir die moderne Welt“, 66 [271-279].
39 Ernst Troeltsch, „Die Bedeutung des Protestantismus fiir die moderne Welt“, 80 [289].
40 Ernst Troeltsch, „Die Bedeutung des Protestantismus fiir die moderne Welt“, 84 [294].
41 Ernst Troeltsch, „Die Bedeutung des Protestandsmus fiir die moderne Welt“, 103 [316].
42 Max Weber, Die protestantische Ethik und der Geist des Kapitalismus.
130