Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1944, Blaðsíða 31
29
Ólafsvikur. Varð vart.
Bíldudals. Enginn dó.
Flateijrar. Væg.
tsafj. Með allra minnsta móti, engin dauðsföll.
Ögur. Lungnabólga með mesta móti. 1 karlmaður, aldraður, lézt á
árinu. Hann hafði lengi gengið með króniska bronchitis og í mörg
undanfarin ár, eftir að kólnaði í veðri og fé kom í hús, legið þungt
haldinn í margar vikur, síðan aðeins getað fylgt fötum til vors, en
lifnað við um sauðburðinn og verið vel vinnufær um sláttinn.
Hesteyrar. Siglir oft i kjölfar kvefsóttar.
Miðfj. Gerði töluvert vart við sig'.
Blönduós. Að sjálfsögðu var ætíð gefið súlfapýridín eða súlfaþíazól
við lungnabólgu, en smábörnum hef ég upp á síðkastið frekar gefið
súlfadíazín. 1 smábarn og 2 gamalmenni dóu úr lungnabólgu á árinu.
Sauðárkróks. Með langminnsta rnóti.
Hofsós. Fylgikvilli kvefsóttar eða inflúenzu.
ólafsfj. Góður árangur sem áður af dagenanmeðferð.
Akureyrar. Hefur gert eitthvað vart við sig alla mánuði ársins, en
aldrei verið mjög útbreidd, nema helzt í aprílmánuði.
Höfðahverfis. 2 tilfelli. Gefið M & B 693. Batnaði báðum fljótt.
Reykdæla. 2 tilfelli á árinu. Báðum batnaði fljótt við súlfalyf.
Þistilfj. Frekar væg.
Vopnafj. Enginn sjúklingur dó úr lungnabólgu. Súlfalyf reyndust
vel.
Seyðisfj. Læknaðist á 2—3 dögum með súlfalyfjum. Aðallega gefið
súlfaþíazól.
Norðfj. Þrátt fyrir óvenjulegan fjölda kvefsjúklinga á árinu voru
mjög fáir skráðir með kveflungnabólgu. Bendir það til óvenju góð-
kynja kvefsóttar.
Fáskrúðsfj. Varð með minna móti vart á árinu. Meðferðin sama og
áður, M & B, og árangurinn góður.
Mýrdals. Ekkert tilfelli á árinu. Beyndar hefur fólki verið leyft að
nota súlfatöflur án skoðunar, ef sjúklingur veiktist grunsamlega og
langt var til læknis, og kann það að hafa tekið fyrir sjúkdóminn.
Slík tilfelli hef ég ekki skráð, þó að lýsing' í síma hafi bent í þá átt.
Fólk, sem langt á að sækja, vill nú eiga greiðan aðgang að súlfa-
iyfjurn, einkum þar sem víðast er stutt í síma, og' eiga svo tal við
lækni, gefa sjúklingnum súlfalyf, ef svo talast til, og sjá hverju fram
vindur. Getur þá enda græðzt dýrmætur tími. Ég hef því tekið upp
þann kost að hafa birgðir þar, sem sími er í fjarlægustu byggðar-
hverfunum, og þar eð viðkomandi þarf hvort eð er að fara í síma
til þess að tala við eða biðja um lækni, geta þeir þá fengið súlfa-
lyf, ef verkast vill, án þess að sækja þau um langan veg.
Vestmannaeyja. Kveflungnabólga gerði einkum vart við sig í börn-
um upp úr inflúenzu og kvefi, og er sennilega vel tíundað, því að
sumt ef henni hefur sjálfsagt aðeins verið bronchitis. Mest áberandi
hefur hún verið í börnum 1—5 ára. Súlfalyfin (súlfaþíazól og súlfadía-
zín nú notuð hér mest vegna minni eiturverkana) hafa yfirleitt revnzt
vel, oft ágætlega.