Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1944, Blaðsíða 130
128
hennar, og mun ekki auðgert að hrekja það með rökum, eins og öllu
er háttað um mjólkurmál hér á landi.
Læknar láta þessa getið:
Rvík. Landbúnaðarnefnd Reykjavíkurkaupstaðar beindi þeirri fyrir-
spurn til héraðslæknis, livort hann teldi ekki „nauðsynlegt eða a. m. k.
mjög æskilegt, að hægt væri að hafa á boðstólum ógerilsneydda, kalda
mjólk til neyzlu fyrir ungbörn og sjúklinga í bænum. Þessu svaraði
héraðslæknir m. a.: „Ég tel hvorki æskilegt og því síður nauðsyn-
legt að hafa á boðstólum ógerilsneydda mjólk og engu fremur fyrir
ungbörn og sjúklinga, nema síður sé. Ég skal taka það fram, að ég
hýst ekki við, að allir læknar líti sömu augum á þetta atriði, en þetta
er mín sannfæring, og er ég reiðubúinn að styðja hana með ýmsum
rökum. Hitt er annað mál, að ég tel æskilegt, að greiðari aðgangur væri
að mjólk, sem ætíð væri tryggt, að væri fyrsta flokks mjólk, og bæjar-
búar neyddust ekki til þess að sætta sig við sambland ýmissa mjólkur-
flokka, sem í raun og veru ætti ekki að nota til neyzlu. Þessu veldur
oft mjólkurskortur, og verður hans vegna að sætta sig við meira sam-
bland en ella. Aukin framleiðsla á fyrsta flokks mjólk í nágrenni bæj-
arins væri því mjög æskileg í því skyni, að bæjarbúar séu ekki neyddir
til að taka hvaða vöru, sem að þeim er rétt. Annars vil ég benda háttv.
landbúnaðarnefnd á kafla þann um mjólk og mjólkursölu, sem er í
uppkasti því að heilbrigðissamþykkt fyrir Reykjavík, er ég hef sent
bæjarstjórn, og einnig lesa athugasemdir við hann. Fengist sú reglu-
gerð tekin í gildi og mjólkurmagn og aðrar aðstæður gerðu hana
framkvæmanlega, finnst mér, að mjög sæmilega væri séð fyrir mjólk
handa bæjarbúum.“
Borgctrnes. Mjólkurframleiðsla og sala mjólkurafurða er nú aðal-
uppistaða velmegunar bænda hér. Er því að vonum, að mikil áherzla sé á
það lögð af hendi þeirra, er með þau mál bænda fara, að öll starfræksla
í sambandi við þessa ágætu vöru fari vel úr hendi. Enda hygg ég sann-
mæli, að mjólkurvörur héðan séu vandaðar og óaðfinnanlegar, þegar
þær fara úr mjólkursamlaginu og mjólkurvinnslunni hér. Hvað
flutningar héðan á markað kunna að spilla mjólkinni, get ég ekki
um dæmt. Sérstaklega álít ég skyr og' smjör hér framleitt óaðfinnan-
lega vöru. Mjólk er alltaf nægileg á boðstólum hjá samlaginu, en
smjörlaust vill verða á haustin og veturna.
Ölafsvíkur. Mjólkurframleiðsla nægileg, meðan kýr eru á gjöf, en
flestar kýr eru snemmbærar og sumarhagar slæmir. Er þvi mjólkurlaust
ágúst—nóvember, og verður að fá mjólkina með áætlunarhílum sunnan
yfir lieiði.
Flateyrar. Mjólkurframleiðsla er allmikil í Önundarfirði, bæði af
þorpsbúum til eigin neyzlu og af bændum í nágrenninu til sölu í
þorpið. í sveitinni er og mikil mjólkurframleiðsla og mikið selt af
henni til ísafjarðar á sumrum, og í haust sótti Djúpbáturinn mjólk
hingað tvisvar í viku. Á Suðureyri er mikill mjólkurskortur, eins og
verið hefur undanfarið.
ísafj. Aðalvandamálið er mjólkin. Það má segja, að hér ríki mjólk-
urhungur 4 mánuði ársins, og aldrei getur mjólkin talizt nóg, því að
Framhald á bls. 175.