Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1944, Blaðsíða 122
120
4. Húsakynni. Þrifnaður.
Læknar láta þessa getið:
Rvík. A árinu hafa verið byggðir 603,41 m2 af timburhúsum og
22371,47 m2 af steinhúsum, eða samtals 22974,88 m2, 3050 m3 af timb-
urhúsum og 175090 m3 af steinhúsum, eða samtals 178140 m3. Hefur
verið byggt fyrir ca. 50 milljónir króna. Alls voru byggð 204 hús, þar
af 124 ibúðarhús, 2 skólar, 2 verzlunar- og skrifstofuhús, 3 alifuglahús,
11 verksmiðju- og verkstæðishús, 62 geymslur og bílskúrar. Aukningar
á eldri húsum samtals 24. Alls hafa 339 ibúðir bætzt við á árinu, þar
með taldar 69 íbúðir, sem vitanlegt er, að hafa verið gerðar í kjöll-
urum húsa án samþykkis byggingarnefndar, og er tala íbúðarher-
hergja samtals 1086. Þetta virðist allálitleg viðbót, ekki sízt þegar
þess er gætt, að samkvæmt manntalinu á bæjarbúum ekki að hafa
fjölgað á árinu nema um tæp 1500 manns. En reynslan sýnir, að hús-
næðisvandræðin hafa sízt verið minni á þessu ári en næstu ár á undan.
Vottorð um húsnæði, 31 að tölu, hnigu í þá átt, að ég dæmdi íbúðirnar
annaðhvort óhæfar eða þá að minnsta kosi meira eða minna heilsu-
spillandi. Af þessurn íbúðum voru 3 braggar, 5 kjallaraíbúðir og 23
aðrar íbúðir. Þó að ég hafi ekki verið kvaddur til þess að skoða fleiri
ibúðir, er það enginn mælikvarði á hollustu íbúðanna í bænum yfir-
leitt, og er langt frá því. Til mín var aðeins leitað, ef íbúendur höfðu
einhverjar sérstakar vonir unr betri íbúðir og ætluðu að nota
vottorð mitt til aðstoðar og áherzlu, einkum ef við bæjaryfir-
völdin var að eiga. Allur sá annar aragrúi fólks, sem í heilsuspillandi
ibúðum býr, lætur vera að kvarta, vegna þess að það telur það til-
gangslaust, þar sem ekki sé í annað hús að venda, ber harm sinn í
hljóði og jafnvel þakkar fyrir að hafa þak yfir höfuðið. Þrifnaði utan-
húss er víða rnjög ábóta vant, en þó vil ég telja, að hann fari heldur
batnandi.
Hafncirff. 20 ný íbúðarhús voru reist, og umbætur voru gerðar á
14 gömlum húsum, svo að rúmar 30 nýjar íbúðir bættust við á árinu.
Húsnæðisvandræði ecu talsverð hér, margir búa þröngt, og nokkrar
fjölskyldur verða að búa í setuliðsbrög'gum. Nokkrar fjölskyldur
húa í Jófríðarstaðaklaustrinu, en verða vitanlega út reknar þaðan,
þegar er nunnurnar koma til landsins aftur, en þær eru nú sem
stendur í Bandaríkjunum.
Skipaskaga. Á árinu hafin bygging 19 nýrra ibúðarhúsa með 29
ibúðum, flest úr steinsteypu, en sum að meira eða rninna leyti (t. d.
efri hæð) úr vikurholsteini og holsteini og 1 úr timbri. 4 eldri íbúðar-
hús voru stækkuð. Skolpveita bæjarins var aukin á árinu, og nær hún
nú til flestallra húsa í bænum. Þrátt fyrir þessar byggingarfram-
kvæmdir er enn húsnæðisekla í bænum, og mundi meira byg'gt, ef ekki
skorti efni og smiði.
Borgarfi. Litlar umbætur. Vindrafstöðvar eru komnar víða og eru
til mikilla þæginda, en vilja bila fljótt.
BorgarnCs. Húsakynni batna með hverju ári. Ný hús reist og eldri
cndurbætt. Sérstaklega virðist mér áberandi, að smíði nýrra húsa sé
uieð meira myndar- og kunnáttusniði. Nú er varla minnzt á annað en