Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1944, Blaðsíða 90
88
costarum, laesiones pulmonum). Gainall maður hvarf um jólaleytið
frá Elliheimilinu Grund og varð úti. Af öðrum slysum má nefna
þessi: Tveggja ára stúlkubarn varð undir skáp í barnaheimili hér i
bænum og beið þegar bana. Maður frá Hveragerði í Ölfusi brann inni,
er Hótel ísland brann. Piltur 19 ára fannst örendur í bifreið, sem
var inni í bílskúr. Hafði látið bifvélina ganga. Dánarorsök kolsýr-
ingseitrun. Karlmaður og kona hlutu áverka í sambandi við áfengis-
nautn og létust bæði af afleiðingunum. Kona nokkur dó úr áfengis-
eitrun eða afleiðingum hennar. Sjálfsmorð eru talin 4 í héraðinu
á árinu, þar af 2 með skotvopnum og 2 með eitri. Auk þess er 1 kona
lalin dáin af afleiðingum tilraunar til sjálfsmorðs. Fékk fract.
columnae og septicaemia. 2 aldraðar konur létust vegna afleiðinga af
Jærbrotum. Flest meira háttar slys, sem koniu fyrir í héraðinu á landi
og ekki leiddu til bana þegar í stað, munu hafa verið tekin til meðferðar
í sjúkrahúsum bæjarins, einkum þó í handlæknisdeild Landsspítal-
ans. Flestir sjúklinganna, sem teknir voru þar til meðferðar, munu
bafa verið sendir heim að lokinni fyrstu aðgerð, en hinir, einkum
þeir, sem voru slasaðir alvarlega, lagðir í sjúkrahúsið. Ambustio 11,
commotio cerebri 22, c. c. & fract. ossium nasi 1, c. c. & fract. tibiae
& fract. processus transversi 1, c. c. '& fract. pelvis 1, contusio oculi
& luxatio lentis 1, renis 1, thoracis 2, variis Ioc.is 9, corpora aliena oculi 2,
pulmonum 1, tracheae 1, oesophagi 1, variis locis 4, lux. humeri 2,
menisci 9, patellae 1, talo-cruralis 1, ruptura intestinum 1, tendinum
3, vulnus contusum 7, dilaceratum 2, perforans oculi 2, scissum tendin-
um flex. man. 2, sclopetarium 2. Fract. cranii v. baseos cranii 5, c. &
claviculae 2, columnae 9, c. & patellae 1, costarum 4, humeri 6, supra-
condylica humeri 1, olecranii 1, antibrachii 1, radii 3, r. complicata
& luxatio carpi 1, pelvis 2, colli femoris 19, femoris 5. f. complicata 1,
patellae 1, p. complicata 1, cruris 11, c. complicata 3, fibulae 1, tibiae
5, t. complicata 2, malleolaris 5, calcanei 5, tali 1, digiti pedis 1. Af
þessum sjúklingum, sem hér hafa verið taldir upp og' ekki hefur áður
verið getið sérstaklega, þykir rétt að geta um konu frá Eyrarbakka,
sem lögð var í Landsspítalann vegna brunasára, er hún hlaut við að
kveikja upp eld með steinolíu, og lézt hún í sjúkrahúsinu af afleið-
ingum þeirra sára.
Iiafnarjj. Vélskipið Búðaklettur í Hafnarfirði fórst 23. des. í ofsa-
roki við Reykjanesskaga. Skipshöfnin bjargaðist með naumindum,
en 2 farþegar drukknuðu.
Skipaskaga. 23. október varð 72 ára karlmaður fyrir bifreið og beið
bana. Nokkur slys urðu á höndum manna við vélavinnu, fæst alvarleg.
Borgarfj. Maður beið bana í bílslysi (fract. cranii). Var farþegi í
bíl, sem valt út af vegi. Mun hafa opnað hurð og höfuðið orðið á milli.
Annars lítið um slys. Beinbrot 5 (fract. costae 2, radii 2, claviculae 1).
Lux. cubiti 2, humeri 1. Brunaslys 4. Maður, sem var að ná benzíni úr
tunnu með gúmslöngu og setti hana á munn sér, fékk benzín niður
í maga og lungu og veiktist hastarlega, fékk pleuritis öðrum megin
með miklum þrautum og háum hita. Varð jafngóður.
Borgarnes. Slys hafa orðið bæði mörg og stór á árinu. Hef komið
að þremur dauðaslysum, þar af tveimur í Borgarfjarðarhéraði. Bíl-