Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1944, Blaðsíða 94
92
Strandasýslu, nasi á karlmanni; enn fremur liðhlaup á olnboga,
ásarnt fract. epicondyli á 4 ára dreng. Af smærri meiðslum má nefna
benjar 12, mör 7, liðatognanir 5, bruna 2.
Sauðárkróks. Slys flest sinávægileg. Fract. metacarpi 1, antibrachii
2, radii 1, radii & processus styloidei ulnae 1, costae 3, claviculae 3,
cruris 1, colli femoris 1, var það maður 91 árs, orðinn mjög lasburða,
hafði meðal annars bronchitis chronica, fékk pneumonia og dó viku
eftir meiðslið. Sublux. radii perannularis 3, lux. digiti IV. 1, humeri
2 (báðar við fall af hesti), í öðru tilfellinu auk þess ýmis önnur
meiðsli (sár og skrámur). Commotio cerebri kom fyrir tvisvar sinn-
um, annað skipti við fall af hesti og í hitt skiptið við fall af heyvinnu-
vél. í eitt skipti var inín vitjað fram í sveit vegna sára á barnsandliti
eftir hundsbit og í annað sinn til manns, er fallið hafði af hestbaki
drukkinn, en í rassvasanum var i'laska, sem brotnaði við fallið og
skar hann stóran og djúpan skurð í reg'io glutealis.
Ólafsft. Slys nokkuð mörg, en flest mjög meinlaus. Vulnera dila-
cerata 14, incisa 11, contusa 23, puncta 5. Distorsiones 10. Combus-
tiones 4. Morsus canis 2. Corpora aliena corneae 3, conjunctivae 5,
digitoruin 2. Commotio cerebri 1. Rafmagnsbruni 1. Hráolíueitrun 1.
Joðeitrun 1. Fract. radii 1, costae 1, claviculae 1, humeri 1 (ofarlega
á handlegg, og neðri brotendi fleygaðist rækilega inn í efra brotenda
i réttri öxulstefnu), columnae 2 (annar sjúkling'urinn var að yinna
við setning' trillubáts, studdi baki við bátnum, en rann til í þara, og
báturinn féll ofan á hann tvöfaldan. Hinn sjúklingurinn var kona að
láta út þvott (datt á hálku á sitjandann).
Akureyrar. 2 dauðaslys á árinu. Var annað 24 ára maður, sem
varð undir bíl, er valt út af veginum í Vaðlalieiðinni, og klemmdist
brjóstkassi hans undir bílnum svo illilega, að maðurinn var örendur,
þegar læknir kom að. Hitt 41 árs maður, er var á útreiðartúr og lenti
á vírstreng, er strengdur var frá símastaur til jarðar til stuðnings
staurnum. Féll maðurinn af hestinum og hlaut við það hauskúpubrot
svo alvarlegt, að hann dó á leið til sjúkrahússins. Af ineira háttar
slysuin má nefna 4 hryggbrot. Voru 2 þeirra afleiðingar af bílslysi,
eitt á manni, sem datt af hestbaki, og annað á telpukrakka, sem
datt á tröppum Gagnfræðaskóla Akureyrar. Fract. colli femoris 2,
cruris 4, humeri 1, antibrachii 15, costae 12, ossis navicularis 1,
digiti 3. Lux. humeri 6. Ainbustiones 8, vulnera 45, corpora aliena 2.
Um orsakir slysanna iná geta þess, að brunarnir voru langflestir
Jiannig til komnir, að hellzt hafði niður heitt vatn eða kaffi, og
var þá oftast nær óaðgæziu um að kenna í sainbandi við slysin má
geta þess, að 1 maður framdi sjálfsmorð á árinu, og var það 26 ára
maður, sem skaut sig í ennið með fjárbyssu, en nokkru áður hafði
annar maður skotið sig með þessari sömu fjárbyssu. Orsökin til sjálfs-
morðsins var, eftir því sem í bréfi sóð, er hann lét eftir sig, fjár-
hagslegar kröggur.
Höfðaliverfis. Talsvert af minna háttar meiðslum. Stúlka reið á vír,
er spenntur var yfir hlið, lenti hann á efri vör hennar, rifnaði hún
frá efra gómi. Datt stúlkan um leið af baki og missti sem snöggvast
meðvitund. 5 ára drengur varð milli stafs og hurðar, er hurðin skellt-