Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1944, Blaðsíða 178
176
kaupi mjólk, enda fer mjólkursala mjög í vöxt. Tilfinnanlegur
skortur á mjólk síðara hluta sumars.
Eijrarbakka. Markaður fyrir mjólkurvörur er hinn öruggasti, og
virðist enn vanta mikið á, að honum sé fullnægt, því að stöðugur og
mjög tilfinnanlegur skortur er á þeim, svo sem alkunnugt er. Virðist
þanþol þessa markaðar vera með eindæmum. Áður en mjólkurbúið
hér var stofnað, ináttu vörur þessar ætíð heita auðfengnar. Nú er
stöðugt kvartað um vöntun á þeim, og þó hefur kúm fjölgað svo
hundruðum skiptir hin siðustu árin, auk þess sem bændur, vel flestir,
spara áreiðanlega nokkuð við sig mjólk nú, og margir, líklega flestir
þeirra, neyta nú smjörlíkis í stað smjörs áður. Eigi að síður skortir
ruikið á, að þessi sparnaður þeirra orki því að bæta úr smjörþurrð-
inni, svo að viðunandi megi teljast. Jafnvel okkur, sem búum hér við
„heygarðshornið", tekst aðeins með höppum og glöppum að fá smjör-
klínu við brauðinu okkar. Við skiljum vel, að borgarbúar verði að
fá mjólk; hún er þeim lífsnauðsyn, engu síður en okkur, svo að við
því er í rauninni ekkert að segja. Hitt kynni að vera meira efamál,
hvort þeim er jafnmikil nauðsyn á öllum þeim rjóma, sem þeir
heimta af búunum. Þó að ekki væri strokkað nema úr svo sem helm-
ingnum af öllum þeim rjóma, mundi það vera mikil bót og smjör
fást ofan á margar sneiðar. Þeir yrðu þá vissulega mun færri, sem
til þess væru neyddir að borða brauðið sitt þurrt.
Vopnafi. Mjólkursala engin úr sveitinni í kauptúnið, enda fram-
leiðir kauptúnið næga mjólk handa sér.
Seyðisfi. Mjólkursamlag er ekkert og aðeins seld mjólk í bæinn frá
einu heimili í hreppnum (Dvergasteini). Er sú mjólk oft sólarhrings
gömul, þegar hún kemur á markaðinn, þá vel skekin og fjarri því að
vera góð vara. Flestir kýreigendur í bænum selja nábúunum eitthvað
af mjólk. Er sú mjólk þá beint úr fjósinu og yfirleitt hreinlega með
hana farið.
Vestmannaeijja. Eins og á var drepið, hefur bærinn orðið að koma
upp kúabúi, vegna þess að bændur hafa mjög fækkað við sig kúm,
telja sér engan hag í mjólkurframleiðslu. Eftirspurn eftir mjólk er
miklu meiri en framboð, og horfir oft til vandræða, hve örðugt er að
ná í mjólk handa börnum, hvað þá handa fullorðnum. Eftirlit með
hreinlæti í fjósum og meðferð mjólkur hefur heilbrigðisnefnd nú falið
dýralækni, sem jafnframt er heilbrigðisfulltrúi, og mun hann annast
það með umferð í fjós 6—8 sinnum á ári.
Keflavíkur. Mjólkursala i Keflavík er ekki rekin með heppilegu
sniði í heilbrigðislegu tilliti. Mjólk er flutt að frá 30—40 bæjum,
mjólkinni hellt saman á einum sölustað, og siðan er hún seld ógeril-
sneydd. Eins og gefur að skilja, getur þetta ekki verið góð neyzlu-
mjólk, enda ekki grunláust um, að hinir tíðu ltvillar ungbarna (háls-
bólga, eyrnabólga, diarrhoea) standi í sambandi við það. Stendur til,
að ég láti gera gerlarannsókn á mjólkinni frá hverjum bæ fyrir sig
og krefjist þess, að mjólkin verði gerilsneydd, ef eitthvað grunsam-
legt kemur í ljós.