Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1944, Blaðsíða 185
183
82,4% allra barnanna, notið kennslu í sérstökum skólahúsum öðrum
en heimavistarskólum, 366 börn, eða 2,7%, hafa notið kennslu í
heimavistarskólum, en þau hafa þó hvergi nærri öll verið vistuð i
skólunum. 1463 börn, eða 10,6%, hafa notið kennslu í sérstökum her-
bergjum í íbúðarhúsum og 596, eða 4,3%, í íbúðarherbergjum innan
um heimilisfólk. Upplýsingar um loftrými eru ófullkomnar, en það
virðist vera mjög mismunandi: í hinum almennu skólahúsum er loft-
rými minnst 1,4 m3 og' mest 8,0 m3 á barn, en jafnar sig upp með
3,1 m3. í heimavistarskólum 2,2—7,5 m?, meðaltal 3,9 m3. í hinum
sérstöku kennsluherbergjum í íbúðarhúsum 2,1—10,4 m3, meðaltal
3,5 m3. 1 íbúðarherbergjum 1,5—8,0 m3, meðaltal 3,2.m3, sem heimilis-
fólkið notar jafnframt. í hinum sérstöku skólahúsum, þar sem loft-
rýmið er minnst, er það oft drýgt með því að kenna börnunum til
skiptis í stofunum. Vatnssalerni eru til afnota í skólanum fyrir 10422
þessara barna, eða 75,8%, forar- og kaggasalerni fyrir 3076 börn,
eða 22,4%, og ekkert salerni hafa 247 börn, eða 1,8%. Leikfimishús
hafa 8851 barnanna, eða 64,4%, og bað 8894 börn, eða 64,7%. Sér-
stakir skólaleikvellir eru taldir fyrir 8402 börn, eða 61,1%. Læknar
telja skóla og skólastaði góða fyrir 9184 þessara barna, eða 66,8%,
viðunandi fyrir 3975, eða 28,9%, og óviðunandi fyrir 586, eða 4,3%.
Að öðru leyti láta læknar þessa getið:
Skipaskaga. Skólaskoðun fór fram á öllum skólastöðum á venju-
legum tíma. í gagnfræðaskólanum voru 66 nemendur, og reyndust allir
heilbrigðir. Ljósmóðirin hér á Akranesi hefur, eins og undanfarið,
litið eftir um óþrifakvilla í barnaskólanum.
Borgarnes. Skólaeftirlit framkvæmt eins og venjulega. Berklapróf
fór nú fram í sambandi við það í Borgarnesi. Annars ekki neitt sér-
staklega fram að taka um skólastaði. Þeir eru flestir ef ekki allir
mjög forsvaranlegir og hafa ekki tekið neinum breytingum.
Ólafsvikur. Á Hellissandi ónýtt skólahús og kalt. A að rífast á
komanda vori og byggja nýtt. í Ólafsvík er líka gamalt skólahús, og
veitti ekki af að byggja nýtt.
Dala. Skólastaðir flestir þeir sömu sem undanfarið og allir viðunr
andi eftir atvikum. I Hvammshreppi var sú nýbreytni upp tekin, að
hafa heimavistarskóla í byggingunum við sundlaugina að Laugum í
Sælingsdal. Eru þarna allgóð húsakynni, sem m. a. hafa verið notuð
fyrir sumardvöl barna á vegum Rauðakrossins undanfarin sumur.
Virðist þetta skynsamlegt.
Patreksfj. Skólaskoðun fór fram í öllum skólahverfum í byrjun
skólaársins. í fjarlægari skólahverfunum tók ég það ráð að stefna
börnunum sarnan fyrir skólatíma, síðast í september, og skoða þau
þá. Bæði er, að þá er betra að komast um héraðið, og svo hitt, að ekki
er hægt að komast yfir að skoða í öllu héraðinu fyrstu dagana í
október. Og það er hins vegar svo, að sé skólaskoðunin nokkurs
virði, og það álít ég að hún sé, þá er varhugavert að láta skólabörnin
koma lengi saman, áður en þau eru skoðuð. Býst ég við að halda
þessu fyrirkomulagi áfram.
Flategrar. Skólaskoðun fór fram í öllu héraðinu i 4 skólahverfum.
Skólahúsunum á Flateyri og Suðureyri er vel við haldið. en þau eru