Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1958, Síða 96
1958
— 94 —
Þingeyrar. Appendicitis acuta 4,
hernia inguinalis 3, tumores haemorr-
hoidales 3, ulcus ventriculi 2.
Hvammstanga. 13 botnlangaskurðir
gerðir á sjúkraskýlinu og nokkur til-
felli af botnlang'abólgu meðhöndluð
með lyfjum.
Blönduós. Botnlangar voru teknir 25,
þar af 15 úr börnum. Af jjeim var
einn sprunginn og þrír aðrir með
drepi. 60 % af þessum sjúklingum voru
börn, en um helming'ur utanhéraðs-
fólk. Öllum heilsaðist vel. 4 drengir
voru skornir við nárakviðsliti, og á 2
þeirra var eista jafnframt fært niður
og fest. 1 kona og 1 telpa voru skorn-
ar við naflakviðsliti og 1 kona við
miðlínuhaul.
Hofsós. Appendicitis: 5 tilfelli, þar
af tveir með appendicitis acuta per-
forata. Fjórir sjúklingar gengu undir
aðgerð, en sá fimmti hlaut lyfjameð-
ferð á spítala. Öllum batnaði vel.
Ólafsfí. Appendicitis: 5, þar af 2
sprungnir botnlangar.
Grenivíkur. Appendicitis 5. Hernia:
1 tilfelli; g'ert við það á fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri. Obstipatio
habitualis: Nokkur brögð eru að þess-
um kvilla.
Breiðumgrar. Appendicitis: 12 sjúk-
lingar, 2 með sprunginn botnlanga og
drep í 3 til viðbótar. Hafa allir verið
skornir á árinu og gengið tíðindalaust.
Ileus: Nær sjötugur maður, rúmliggj-
andi sjúklingur, fékk thrombosis art.
mesentericae sup. Dó skömmu eftir
aðgerð á sjúkrahúsi.
Raufarhafnar. Ulcus ventriculi et
duodeni: Maður fékk mikla magablæð-
ingu; var búinn að hafa ulcuseinkenni
i mörg ár; fluttur suður og skorinn á
Landsspítalanum.
Þórshafnar. Appendicitis: 2 tilfelli,
báðir skornir á Akureyri. Hernia in-
guinalis 1, umbilicalis 1.
Vopnafí. Hernia umbilicalis 3, in-
guinalis 1, lineae albae 1, haemorrhoi-
des 2, cholelithiasis 1.
Seyðisfí. Appendicitis er mjög í rén-
um hér. Enginn sjúklingur skorinn á
árinu. Hernia: 2 sjúklingar skornir
vegna kviðslits. Ulcus ventriculi: 3
sjúklingar hafa verið skornir í Lands-
spitala vegna ulcus. Einum hefur batn-
að, hinir tveir svipaðir og áður. Ileus:
70 ára kona var send í flugvél i Lands-
spítalann vegna ileus. Öbstructio á
görn af adhaerensum eftir laparoto-
mia. Sjúklingnum heilsaðist vel eftir
aðgerðina.
Nes. Appendicitis: Nokkrir héraðs-
búar og allmargir utanhéraðssjúkling-
ar skornir á sjúkrahúsinu með góðum
árangri. Cholecystitis 2, cholecystopa-
thia 2, cholangitis 1, cholelithiasis 3.
Hernia: Allmargir sjúklingar skornir
á sjúkrahúsinu, einkum vegna hernia
inguinalis, en einnig nokkrir vegna
hernia umbilicalis og 1 vegna hernia
ventralis. Ulcus ventriculi: 2 ný til-
felli. Medicinsk meðferð.
Eskifí. 11 ára drengur frá Búðareyri
fékk hita og verki í kvið. Foreldrar
töldu í fyrstu, að þetta væri iðrakvef,
sem var þá nokkuð algengt i börnum
þarna, og leituðu þvi ekki læknis.
Loks þótti hitinn orðinn þrálátur, þar
eð verkir voru horfnir. Læknir því
sóttur. Botnlanginn reyndist sprung-
inn og hafði líldega sprungið fljótlega,
eftir að drengurinn veiktist. ígerð var
hægra megin i holi. Fékk antibiotica-
meðferð, þar til hiti var orðinn eðli-
legur. Nokkrum mánuðum seinna var
liann skorinn í Neskaupstað og heils-
aðist vel. Cholelithiasis: 57 ára kona
fékk gallkveisuköst. 49 ára maður kom
heim frá Beykjavík. Hafði verið þar
nálægt viku og líklega drukkið þar
meira og minna allan þann tíma. Nótt-
ina eftir heimkomuna byrjaði hann að
kasta upp blóði. Uppköstin héldust þá
nótt og allan næsta dag. Missti mikið
blóð. Ég gaf honum Macrodex og Inf.
natr. chlor. c. glucosi, einnig B-vita-
min i stórum skömmtum. Eftir veik-
indin fékk hann blóðaukandi lyf, B-
og C-vítamínsprautur og B 12. Hann
var fljótur að jafna sig og varð alveg
jafngóður. Böntgenmyndir, teknar
nokkru seinna, sönnuðu, að hér var
aðeins um slímhúðarbólgu að ræða,
og maginn virtist fullkomlega eðlileg-
ur. Ulcus ventriculi et duodeni: Virð-
ist sjaldgæft í héraðinu.
Búða. Appendicitis: Árlega nokkur