Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1958, Blaðsíða 110
1958
— 108 —
sinni lögð á töng, en tókst ekki a‘ð
ná barninu. Höfuð mjög stórt i and-
litsstöðu. Fékk flugvél ineð konuna til
Akureyrar, þar sem gerð var sectio
caesarea. Barnið lifði ekki. Annað
sinn kallaður til konu um nótt, sem
fengið hafði mikla blæðingu 4—6 vik-
um fyrir tímann. Fósturhljóð heyrðust
ekki, þeg'ar ég kom, en konan var með
skarpar hríðir. Skömmu eftir komu
mina á staðinn fæddist andvana svein-
barn. Konunni heilsaðist vel. Eitt barn
fæddist með pes equinovarus bila-
teralis, drengur, sendur á I.andsspít-
alann til aðgerðar. Eitt sinn þrýst út
fastri fylgju í svæfingu.
SeyðisfJ. Allar fæðingar gengu vel
og án sérstakra aðgerða. Eitt barn
fæddist andvana 2—3 mánuðum fyrir
tímann og annað vanskapað (spina
bifida). 19 konur af 21 fæddu í
sjúkrahúsinu.
Nes. Langflestar konur fæddu á
sjúkraliúsinu. Komu víðs vegar að af
Austurlandi til að fæða börn sín.
Gengu fæðingar yfirleitt vel.
Eskifj. Eitt fósturlát, 24 vikna fóst-
ur. Einu sinni föst fylgja. Allar aðrar
fæðingar voru eðlilegar í alla staði,
nema tvö börn fæddust i framhöfuð-
stöðu.
Búða. Fæðingar gengu yfirleitt vel.
Mín oftast vitjað til að herða á sótt
og vegna óska um deyfingu. 2 van-
sköpuð börn fæddust. Utanliéraðskona
fæddi andvana barn með spina bifida
og hydrocephalus. Hitt barnið fæddist
með hernia umbilicalis og þarma úti.
Var með lifsmarki, en dó strax eftir
fæðingu.
Hafnar. 34 ára gömul kona ól tví-
bura. Hinn fyrri var með naflastreng
miðsettan í fylgju og greiningu um
hana alla. Hinn var með naflastreng
randsettan i sömu fylgju og lítil grein-
ing, sýnilega afétinn. Veslaðist upp og
dó eftir 10 daga. Sóttur á Djúpavog
\egna fósturláts. Læknir enginn á
staðnum. Var hálfa sjöundu klukku-
stund að komast þangað. Gerði eva-
cuatio uteri í trilenenarcosis, og mátti
ekki seinna vera.
Kirkjubæjar. Fyrirrennarar mínir
hafa mjög brýnt fyrir þunguðum kon-
um að leita læknis um meðgöngutim-
ann. Reynt var að fylgja þeirri reglu
og tókst vonum betur. Fæðingar fóru
allar fram í heimahúsum nema tvær,
sem fram fóru í fæðingardeild Lands-
spítalans. Ljósmæður alltaf viðstaddar
og læknir oftast. Heimafæðingar gengu
undantekningarlaust vel. í einu tilfelli
þó lögð á töng vegna framhöfuðstöðu
og grindarþrengsla.
Vestmannaeyja. Tvö börn fæddust
andvana, annað vegna fyrirsætrar
fylgju, en hitt af langdreginni fæð-
ingu. Tvisvar fæddust tviburar. Eitt
barn dó þrem vikum eftir fæðingu
vegna vanskapnaðar (spina bifida).
Flestar konurnar ólu börn sín á
sjúkrahúsi. Keisaraskurður var gerður
tvisvar vegna grindarþrengsla og einu
sinni vegna fyrirsætrar fylgju. Töng
var einu sinni lögð á með hystero-
tomia vaginalis vegna langdreginnar
fæðingar. Fylgju þurfti tvisvar að losa
með hendi. Öllum konunum heilsaðist
vel.
Lauyarús. Læknir var viðstaddur
fæðingar í 14 skipti. Engir sérstakir
erfiðleikar, og heilsaðist mæðrum og
börnum vel.
Selfoss. Fæðingar gengu allar slysa-
laust.
Eyrarbakka. Vitjað 12 sinnum til
sængurkvenna á árinu. Hjá þrem
þeirra sóttleysi. Annars ekkert að.
Keflavíkur. Fæðingar gengu yfirleitt
vel, og er ekki getið neinna fæðingar-
aðgerða i skýrslum ljósmæðra, nema
að deyfa hriðir. Ljósmæður geta ekki
um fósturlát, en nokkur tilfelli er mér
kunnugt um. Fjögur vansköpuð börn
eru talin í skýrslum ljósmæðra. Eitt
vantaði vinstri hönd og likast bruna-
blöðru á hægra handarbaki, sem smá-
jafnaði sig, ófullburða. Annað hafði
stórt, blæðandi encephalocele, lifði
nokkrar klukkustundir. Þriðja vantaði
alla fingur á aðra hönd nema þumal-
fingur. Fjórða barnið var holgóma og
með skarð í vör, sent til aðgerðar á
Landsspítalann.
Hafnarfj. Skýrslur um barnsfarir
hafa borizt úr öllum þremur umdæm-
um héraðsins. í tveimur umdæmum
hefur ekkert barn fæðzt, Vatnsleysu-
strandar- og Garða- og Bessastaða-
hreppi. Ljósmóðirin í Hafnarfjarðar-