Úrval - 01.04.1947, Síða 10
8
tJRVALi
hvað dávaldurinn hefur sagt
honum að gera. Honum hefur
t. d. verið sagt að setjast á til-
tekinn stól í salnum, áður en
hann fer út. Þegar hann vaknar,
man hann þetta, og við skulum
gera ráð fyrir, að hann einsetji
sér að gera þetta ekki. Þó verð-
ur hann að játa, að hann hefur
mikla löngun til að setjast á
stólinn, þótt hann láti ekki eftir
henni. Hann er ekki í rónni,
hann hefur ekki frið í sínum
beinum, og til að losna við þessa
óþægindatilfinningu verður það
oftast úr, að hann gengur að
stólnum og sezt á hann, og jafn-
skjótt hverfur óróinn.
Þessi dæmi, sem tekin hafa
verið, sýna, að barátta milli
tveggja hneigða í persónuleik-
anum hefur óró og vanlíðan í för
með sér, hvort sem maðurinn er
sér að mestu meðvitandi um
þessa togstreitu eða hún fer
fram í undirvitundinni. Óró,
vanlíðan og kvíði, sem fylgir oft
taugaveiklun og sálveiklun, virð-
ast eiga að miklu leyti rót sína
að rekja til togstreitu milli and-
stæðra hneigða í sál mannsins.
Hve lengi geta dáhrifin stað-
ið? Hvaða afleiðingar myndi
það hafa, ef Jón stæði gegn
sefjuninni, þegar hann er vakn-
aður, þrátt fyrir sterka löngun
til að breyta samkvæmt henni?
Líklegt er, að hneigðin, sem
vakin er í dáleiðslunni, muni
dofna smám saman og hverfa
að lokum. Tilraunir benda til
þess, að dáhrifin geti stundum
verið svo sterk, að þau leiði til
verknaðar hálfum mánuði frá
því, að maðurinn var dáleiddur.
Þetta er næg ástæða til þess, að
engir aðrir ættu að fást við dá-
leiðslu en þeir, sem fengið hafa
vísindalega kennslu hjá geð-
lækni eða sálfræðingi. Aðalhætt-
an við dáleiðsluna er sú, að hinn
dáleiddi geti fengið taugaáfall,
að kvíði, hræðsla og órói ásæki
hann sakir ýmissar innri tog-
streitu, sem óvanur og ómennt-
aður dáleiðandi getur vakið
óviljandi með honum.
Dáleiðslan er þó hættuminni
en fyrst var ætlað. Áhrif dá-
valdsins yfir hinum dáleidda eru
takmörkuð, í fyrsta lagi af sef-
næmi mannsins og af siðferðis-
og trúarskoðunum hans og í
öðru lagi af því, að maðurinn
verður sjálfviljugur að ganga
dávaldinum á hönd, sýna hon-
um traust og vinsemd og ganga
undir tilraunina af fúsum vilja.
Það er yfirleitt ekki hægt að dá-
leiða mann að honum nauðug-